Með öll ljós kveikt

U2 hafa starfað í rúm 50 ár og vináttan er þétt og góð.

Carnaval De Luz er fyrsta eiginlega hljóðversplata U2 í níu ár. Aldrei hefur liðið jafn langur tími á milli platna frá þessari risasveit, á tímabili langvinsælasta rokksveit heims og eina nústarfandi hljómsveitin sem hefur verið skipuð sömu fjórum meðlimum frá upphafi. Mig langar til að hugsa aðeins inn í sveitina í þessum pistli, eðli hennar og eigindir, ásamt því að skoða innihald plötunnar nema hvað.

U2 hefur verið mér hugstæð undanfarið, sjá opnurnar sem prýddu sunnudagsblaðið í september þar sem ég tilgreindi 50 bestu lög sveitarinnar. U2 er mér – og efalaust fleirum – líka hugstæð vegna markaðsherferðarinnar í kringum plötuna nýju sem er búin að vera ofboðsleg. U2-limir hafa bókstaflega verið alls staðar og ég er eiginlega hissa á því að við hjónin höfum ekki vaknað með Bono á milli okkar.

U2-liðar á settinu vegna myndbandsins „The Greatest Show On Earth“. Ljósmynd/Stilla úr myndbandi, Anton Corbijn

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab