Gullkokkarnir taka yfir vikumatseðilinn

Eftirrétturinn sem kokkalandsliðið bar fram þegar það hlaut gull fyrir þriggja rétta kvöldverð á HM í Lúxemborg á laugardaginn. Í gegnum tíðina hafa liðsmenn verið rausnarlegir við okkur áhugakokkana og aðra leikmenn í eldhúsinu. Uppskriftir þeirra skreyta vikumatseðilinn að þessu sinni. Ljósmynd/Mummi Lú

Íslenska kokkalandsliðið hlaut gull á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg á laugardag fyrir þriggja rétta kvöldverð sem það framreiddi fyrir 110 gesti. Næsta keppni liðsins er á þriðjudag. Af því tilefni hefur matarvefur mbl.is sett saman vikumatseðil úr uppskriftum sem liðsmenn hafa deilt með lesendum í gegnum tíðina.

Kokkarnir hafa verið rausnarlegir með uppskriftir sínar og gefið áhugafólki kost á að spreyta sig á réttunum heima. Vikan hefst á lúðu Wiktors Pálssonar og á keppnisdaginn er smalabaka Ísaks Arons Jóhannssonar á borðum. Á fimmtudag tekur við þakkargjörðarveisla Andrésar Björgvinssonar, áður en helgin fær sinn skerf af hamborgara, steik, fiskveislu og súkkulaðismákökum.

Mánudagur: Lúða Wiktors með freyðandi karrísósu

Wiktor Pálsson opnar vikuna með léttbakaðri lúðu og grænni karrísósu. Ferskt hnúðkáls- og perusalat gefur réttinum stökka mótspyrnu við mjúkan fiskinn og bragðmikla sósuna.

Þriðjudagur: Smalabaka fyrirliðans

Á keppnisdegi kokkalandsliðsins eldum við íslenska smalaböku Ísaks Arons Jóhannssonar. Hægeldað lambakjöt, grænmeti og mjúk kartöflumús gera hana að notalegum kvöldverði á meðan við horfum á beint streymi af Facebook-síðu landsliðsins og bíðum tíðinda frá Lúxemborg.

Miðvikudagur: Rauðspretta Ísaks

Ísak Aron Jóhannsson býður upp á pönnusteikta rauðsprettu með sítrónu- og kaperssmjörsósu. Hann vill leyfa fiskinum að njóta sín og mælir með soðnum kartöflum og ferskum tómötum með.

Fimmtudagur: Þakkargjörðarveisla Andrésar

Andrés Björgvinsson byrjar veisluna á stökkum andakrókettum áður en hann ber fram smjörsprautað kalkúnaskip með sætkartöflupæi, pekanhnetukrönsi, rósakáli með beikoni og kryddaðri sósu.

Föstudagur: Subbupési Huga Rafns

Föstudagurinn kallar á uppáhaldshamborgara Huga Rafns Stefánssonar. Á borgaranum eru tvöfaldur ostur, heimagerð beikonsulta, steiktir sveppir, pikklaður rauðlaukur og chipotle-sósa. Borgarann má steikja á vel heitri pönnu.

Laugardagur: Steikarveisla Gabríels

Gabríel Kristinn Bjarnason kann að gera laugardagskvöldið að veislu. Hann ber fram ribeye-nautasteik með chili-hollandaise-sósu og stökkum parmesankartöflum. Steikin er pönnusteikt og ausin með smjöri, hvítlauk og rósmaríni áður en hún fær að hvíla.

Sunnudagur: Fiskveisla Bjarna

Bjarni Ingi Sigurgíslason ber fram reykta ýsu og nætursaltaðar þorskgellur með piparrótarkartöflumús, gljáðum rófum, dillmaríneruðum eplum og stökkum rúgbrauðsmulningi. Timíanhollandaise-sósan bindur veisluna saman. Aðalheiður Dögg Reynisdóttir sér um sunnudagsbaksturinn: Súkkusukk, smákökur með þremur tegundum af súkkulaði.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab