„Söfnunarröskun systur minnar hefur gert heimili hennar óöruggt og ég veit ekki hvernig ég á að hjálpa“
Pressan
Mánudaginn 23. nóvember 2026 06:30
Mynd úr safni. Mynd: Unsplash.com.
Hin ráðagóða Abby hefur svarað lesendum bandarískra fjölmiðla síðan á sjötta áratug síðustu aldar. Hún hefur verið svo vinsæl að eftir að hin upprunalega Abby, Pauline Esther Phillips, lést árið 2013 tók dóttir hennar, Jeanne Phillips, við keflinu.
Abby tekst á við ýmislegt sem brennur á lesendum hennar og endurspegla svör hennar stundum breytingar í samfélaginu sem fólk hefur ekki endilega áttað sig á.
Til hennar skrifaði maður sem sagðist hafa áhyggjur af systur sinni, sem hann kallaði Marilyn, sem er 79 ára, fjórum árum eldri en maðurinn og tvíburabróðir hans. Sagði maðurinn systur sína vera fráskilin og barnlaus.
„Hún hefur lengi glímt við þunglyndi og er í meðferð hjá geðlækni, sem hefur ávísað á hana ýmsum lyfjum. Marilyn er haldin verslunaráráttu og á í erfiðleikum með peningamál. Á áttunda áratugnum keypti hún íbúð fyrir um 20.000 dali. Nú hvíla um 80.000 dalir í skuldum á eigninni. Í hvert sinn sem hún þurfti á peningum að halda fyrir stórkaup, til dæmis bílakaup, tók hún nýtt veðlán og gekk þannig á eigið fé íbúðarinnar. Hún hefur mikið dálæti á skartgripum og á þá í hrúgum um allt heimili sitt. Tekjur hennar nema 80.000 dölum á ári, en hún hefur samt sem áður farið í gegnum gjaldþrot vegna skulda og misst íbúðina í nauðungarsölu vegna ógreiddra hússjóðsgjalda.“
Mynd úr safni. Mynd: Unsplash.com.
Sagði maðurinn þá bræðurnar hafa í mörg ár reynt að fá systur sína til að hemja eyðsluna.
„Heilsa Marilyn fer versnandi og heimili hennar er algjört martraðarástand vegna söfnunarröskunar (e. hoarding); maður þarf að klifra yfir dót til að komast inn á baðherbergi.“
Sagði maðurinn systur sína ekki hafa neina möguleika á að greiða fyrir hjúkrunarheimili eða þjónustuíbúð þyrfti hún á slíku að halda. Bræðurnir væru ákveðnir í að veita henni engan fjárhagslegan stuðning, en þeir hefðu áhyggjur.
„Marilyn vill ekki koma til móts við okkur með því að undirrita umboð vegna fjármála, erfðaskrá eða skjöl sem tryggðu yfirfærslu íbúðarinnar við andlát hennar. Hún hefur hingað til getað séð um sig sjálf, þótt það sé í miklu óskipulagi og á ystu nöf, þannig að lögráðamennska væri ekki viðeigandi úrræði. Ég hef heldur engan áhuga á að gerast lögráðamaður hennar. Hvaða ráð hefur þú varðandi þessa stöðu?“
Abby svaraði bróðurnum því að það væri ekki í verkahring hans að laga ástandið hjá systur hans, þó hann gæti látið viðeigandi aðila vita að hann hefði áhyggjur. Hann gæti ekki þvingað Marilyn til að hætta að versla eða eyða peningum sem hún á ekki, en hann gæti stuðlað að því að hún stofni ekki líkamlegu öryggi sínu í hættu.
„Þar sem hún er nú þegar í meðferð hjá geðlækni er rétt að láta lækninn vita af söfnunarröskun hennar og verslunaráráttu. Þú getur verið viss um að Marilyn hefur ekki minnst á þetta við hann! Hafðu í huga að læknirinn mun ekki upplýsa þig um framgang mála hjá henni, og gæti jafnvel neitað að staðfesta hvort hún sé skjólstæðingur þar, en starfsfólkið ætti engu að síður að hlusta á áhyggjur þínar.
Ástandið í íbúðinni hennar virðist fela í sér heilsufarsáhættu, svo það er rétt að hafa samband við þjónustu sem sinnir vernd fullorðinna (e. Adult Protective Services). Þeir geta komið heim til hennar, metið áhættuna og komið henni í samband við aðila sem getur aðstoðað hana við að ná tökum á ástandinu.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗