„Leikmenn sem munu klárlega gera tilkall til A-landsliðsins“
„Það er vert að horfa til þeirra tveggja og þetta eru leikmenn sem munu klárlega gera tilkall til A-landsliðsins í framtíðinni,“ sagði fyrrverandi knattspyrnu- og landsliðsmaðurinn Kári Árnason í samtali við mbl.is.
Daníel Leó Grétarsson hefur stimplað sig inn sem lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins, en óljóst er hver er fyrsti kostur við hlið hans í vörninni.
Sverrir Ingi Ingason sleit krossband í sumar og verður frá keppni næstu mánuðina en hver er líklegur til þess að eigna sér stöðuna við hlið Daníels Leós?
Stefán Teitur líklegastur
„Það er mjög erfitt að segja til um það. Sverrir Ingi er með slitið krossband og óvíst hvenær hann snýr aftur. Við höfum verið að lenda í meiðslum í öftustu víglínu og það er hluti af þessu,“ sagði Kári.
„Arnar virðist vera mjög hrifinn af Stefáni Teiti Þórðarsyni í vörninni og svo erum við með Guðlaug Victor Pálsson og Hörð Björgvin Magnússon þarna líka, en þeir eru ekki að yngjast neitt. Mín tilfinning er sú að Arnar muni treysta á Stefán Teit í þessari stöðu með Daníel.“
Spennandi kostir í U21-landsliðinu
Þá hafa miðverðir U21-árs landsliðsins staðið sig mjög vel í síðustu leikjum.
„Svo erum við líka með mjög spennandi kosti í U21-landsliðinu. Þeir Júlíus Mar Júlíusson og Davíð Helgi Aronsson hafa staðið sig mjög vel þar.
Nóel Atli Arnórsson er annar kostur sem hefur staðið sig mjög vel með Álaborg. Ég hef séð minna af honum, en þó heyrt að hann sé virkilega góður leikmaður sem gæti líka gert tilkall til liðsins,“ sagði Kári.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗