Víða rigning og hiti allt að 10 stigum

Innlent | mbl | 23.11.2026 | 6:03

Regnhlífin ætti að koma að góðu gagni víða á landinu í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

Í dag verður suðaustanátt á landinu, víða á bilinu 8-15 m/s og rigning en þurrt verður að mestu norðan- og norðaustanlands. Hitinn verður á bilinu 5 til 10 stig.

Á morgun er spáð sunnan 10-18 m/s með rigningu en þurrt verður að kalla norðanlands. Hitinn verður á bilinu 5 til 10 stig. Það dregur úr vindi síðdegis og kólnar með skúrum eða éljum á vestanverðu landinu.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab