Manuela og íslenskar miðaldra The Bold and the Beautiful-stjörnur

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um Tyson-kjólinn og íslenskar miðaldra konur. Ljósmynd/Kári Sverriss

Marta María Winkel veltir fyrir sér hvers vegna miðaldra konur vilja raunverulega líta út eins og aukaleikarar í The Bold and the Beautiful. Og líka hvers vegna Manuela Ósk er alltaf í eftirspurn – ekki framboði.

Mér létti stórlega í vikunni þegar ég áttaði mig á því að Tyson-kjóllinn hennar Manuelu Óskar Morthens, áður Harðardóttur, safnaði ekki ryki inni í fataherbergi. Kjóllinn væri enn þá í fínu standi og kominn aftur í notkun. Það hefur verið móðins hjá stórstjörnunum úti í heimi að mæta í gömlum kjólum á rauða dregilinn og greina frá því á félagsmiðlum. Birta jafnvel tvær myndir; eina mynd frá árinu 1994 og hina frá 2026, og fá yfir sig sjóflóðahrós. Þetta getur verið upplífgandi fyrir andlega heilsu. Venjulegt fólk gæti tekið upp á þessu. Farið að máta gömul föt úr Benetton og birta fyrir-og-eftir-myndir. Miðaldra konur ættu kannski að fara að snúa sér að því í stað þess að birta gervigreindarmyndir af sjálfum sér sem geta verið ógnvænlegar því allar líta þær út eins og aukaleikarar í The Bold and the Beautiful.

Hér er Manuela Ósk árið 2002 í Tyson- kjólnum með borða, kórónu og töfrasprota! mbl.is/Jón Svavarsson

Það var þannig að Manuela lánaði 16 ára dóttur sinni, Elmu Rós Grétarsdóttur Steinsson, kjólinn þegar hún var á leiðinni á söngvakeppni í Versló. Þegar stúlkan var komin í kjólinn smellti mamma mynd og setti á félagsmiðla ásamt ljósmynd af sjálfri sér í kjólnum þegar hún var Fegurðardrottning Íslands 2002 aðeins 18 ára gömul.

Ég gleymi ekki þessu augnabliki þegar Manuela vann keppnina sem haldin var á Hótel Íslandi. Það var öllu tjaldað til. Heitasta djammfólk þess tíma mætti í sínu allra besta formi til þess að sjá það með eigin augum hvaða stúlka myndi fara heim með töfrasprota, kórónu og borða.

Ég var að sjálfsögðu á svæðinu, ekki þó sem keppandi í keppninni heldur sem blaðamaður. Vinnudagarnir gengu út á að gera lífið skemmtilegra og stuðið var svo stjórnlaust að ég gleymdi alltaf að spyrja ritstjórana hvort ég fengi ekki greidda aukavinnutíma þegar ég þurfti að bregða mér á Hótel Ísland að kvöldi til. Nú eða í Perluna á nýársdag þar sem elíta þessa tíma borðaði gull og skálaði áður en hún stökk sjálf upp á svið til að taka lagið með hljómsveitinni, sem var þó alls ekki að óska eftir nýjum röddum í bandið. Hún fór upp á svið óumbeðið. Svo ferðaðist ég heilt sumar með Bylgjulestinni sem var lærdómsríkt en líka alveg óbærilega fyndið! Það er alltaf gott að eiga áður óbirta brandara á lager hugans ef létta þarf stemningu í leiðinlegum aðstæðum.

Kjóllinn er fallegur í sniðinu.

Kjóllinn er fallegur í sniðinu. mbl.is/Jón Svavarsson

Það er góður skóli að vera fluga á vegg í samkvæmislífi fólks sem telur sig hafa sigrað heiminn. Það er hægt að læra svo margt um mannlega hegðun á þennan hátt sem engin menntastofnun hefði getað matreitt á silfurfati. Sumt er bara hægt að læra með eigin augum og eyrum en þá þarf fólk að vera vakandi.

Aftur að Manuelu og Tyson-kjólnum. Það þótti stórfrétt að unglingur frá Íslandi hefði fengið Versace-kjól að gjöf frá Mike Tyson, heimsþekktum hnefaleikakappa. Þetta gerðist allt mjög óvænt, en eins og sagan er sögð þá á Manuela að hafa hitt Tyson úti á götu í New York og hann gefið henni kjól. Ég botna reyndar ekkert í þeirri atburðarás en það er önnur saga.

Það breytir því hins vegar ekki að frá því þarna um árið hefur Manuela verið klók í að koma sér á framfæri og skapa eftirspurn eftir sjálfri sér. Það er einstakur hæfileiki því auðvitað er miklu betra að vera alltaf í eftirspurn – ekki í framboði. Það kann hún upp á 10 og ég ber ómælda virðingu fyrir því. Þetta er ekki öllum gefið!

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab