Þriðjungur manndrápsmála fyrir luktum dyrum

Þinghald hefur verið lokað í um þriðjungi allra manndrápsmála sem komið hafa fyrir héraðsdóm síðasta áratuginn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í þriðjungi þeirra manndrápsmála sem komið hafa upp á Íslandi síðasta áratuginn hefur þinghald verið lokað og í tveimur til viðbótar hefur þinghald verið lokað að hluta. Í tveimur þessara mála voru sakborningar undir 18 ára aldri, en sérstaklega er tekið fram í lögum að slíkt geti verið ástæða til að loka þinghaldi. Ef þau eru ekki talin með er samt sem áður meira en fjórða hvert morðmál lokað. 

Lögmaður segir þessar tölur vekja mann til umhugsunar um hvort of langt sé gengið í að loka málum frekar en að fara eftir meginreglu laga um að þinghald skuli háð í heyranda hljóði eða beita vægari úrræðum.

Um helmingur lokaður síðustu tvö ár

Á síðasta ári og það sem af er þessu ári hefur talsverður fjöldi morðmála ratað á borð dómstóla. Eru þau samtals orðin níu, en til viðbótar er eitt mál þar sem ekki hefur verið gefin út ákæra, en þar er um svokallað Vallargerðismál að ræða.

Af þessum níu málum hefur þinghald verið lokað í þremur málum og í nýjasta málinu hefur einnig verið gefið út að þinghald verði lokað, en þar er um að ræða mál þar sem sonur þingmannsins Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur er sakaður um að hafa orðið föður sínum og eiginmanni Lilju að bana. Það er því rétt tæplega helmingur allra manndrápsmála síðustu tvö árin sem verða lokuð mál.

Þegar horft er yfir lengra tímabil, eða yfir 10 ár, til og með árinu 2017, má sjá að samtals hafa 28 manndrápsmál komið til kasta dómstóla. Til viðbótar létust sakborningar í þremur málum áður en rannsókn hófst eða niðurstaða rannsóknar lá fyrir.

Af þessum 28 málum hefur þinghald verið lokað í níu skipti og í tveimur málum hefur þinghald verið lokað að hluta. Í 17 málum hefur þinghald verið opið. Það fer því eftir því hvort málin sem eru opin að hluta eru talin með hvort hlutfall lokaðra mála sé 32% eða um 40%. Sé þessum tveimur málum hins vegar sleppt er hlutfall lokaðra mála 34%.

Meginreglan opið þinghald

Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skulu þinghöld háð í heyranda hljóði, þ.e. fyrir opnum dyrum. Hins vegar er heimilað að dómari geti ákveðið, að eigin frumkvæði eða að kröfu saksóknara, sakbornings eða brotaþola, að þinghald fari fram fyrir luktum dyrum að öllu leyti eða hluta.

Sérstaklega er tekið fram að slíkt eigi við ef sakborningur er yngri en 18 ára, en einnig eru talin upp sjö atriði sem geti valdið því að dómari telji slíka ráðstöfun nauðsynlega.

  • a. til hlífðar sakborningi, brotaþola, vandamanni þeirra, vitni eða öðrum sem málið varðar,
  • b. vegna nauðsynjar sakbornings, brotaþola, vitnis eða annars sem málið varðar á því að halda leyndum atriðum varðandi hagsmuni í viðskiptum eða samsvarandi aðstöðu,
  • c. vegna hagsmuna almennings eða öryggis ríkisins,
  • d. af velsæmisástæðum,
  • e. til að halda uppi þingfriði,
  • f. meðan á rannsókn máls stendur og hætta þykir á sakarspjöllum ef þing væri háð fyrir opnum dyrum,
  • g. meðan vitni gefur skýrslu án þess að það þurfi að skýra frá nafni sínu í heyranda hljóði, sbr. 8. mgr. 122. gr.

Er dómara heimilt að ákveða við þingfestingu í eitt skipti fyrir öll að þinghöld í máli verði að fullu lokuð, en einnig er hægt að loka þinghaldi að hluta þegar ákveðið vitni gefur skýrslu, þegar ákveðin sönnunargögn eru borin upp o.s.frv. Þetta átti t.d. við þegar myndir voru sýndar í dómsal í dómsmáli yfir skipverjanum Thomasi Möller Olsen sem myrt hafði Birnu Brjánsdóttur. Að öðru leyti var þinghald málsins opið.

Oftast gert til að hlífa málsaðilum

mbl.is óskaði eftir afriti úr þingbók fyrir öll þau mál þar sem ákveðið hafði verið að hafa lokað þinghald. Í þeim tveimur málum þar sem um ungmenni var að ræða var vísað til ungs aldurs sakborninga. Eru það manndráp á Bryndísi Klöru og manndráp við Fjarðarkaup. Í fimm málum er vísað til a-liðarins hér að ofan til að hlífa sakborningi, brotaþola, vandamanni eða vitni. Eru það Súlunesmálið, Krýsuvíkurmálið, manndráp í Bökkunum, manndráp á Akureyri og Sandgerðismálið. Í Nýbýlavegsmálinu er svo í raun vísað til undanþága almennt en ekki hvaða undirliður eigi þar við.

Áhersla á að lokað þinghald sé undantekning

Þegar greinargerð með lögunum er skoðuð sést að sérstaklega er tekið fram að leggja beri áherslu á að um sé að ræða undantekningar frá meginreglunni um opinbera málsmeðferð í heyranda hljóði. Því leiði ekki sjálfkrafa af þeim aðstæðum sem listaðar séu upp að loka skuli þinghaldi.

„Þvert á móti ber dómara að vega og meta aðstæður í hverju slíku tilviki og vera reiðubúinn að rökstyðja það sérstaklega ef hann telur ástæðu til að halda þing fyrir luktum dyrum.“

Opið þinghald með hagsmuni allra að leiðarljósi

Flóki Ásgeirsson, lögmaður Blaðamannafélags Íslands, segir í samtali við mbl.is að nauðsynlegt sé að hafa meginregluna um þinghald í heyranda hljóði í forgrunni. „Hún er sett með hagsmuni allra að leiðarljósi,“ segir hann. Það sé ekki síst réttindamál fyrir sakborninga að réttað sé yfir þeim í opnu þinghaldi. „En það er líka réttur almennings að vita hvað er í gangi í þjóðfélaginu,“ bætir Flóki við.

Segir hann að þegar um manndrápsmál sé að ræða séu talsverðir hagsmunir og oft þung refsing í húfi. Málin veki jafnframt athygli og það sé áhugi á að fylgjast með framvindu málanna. Segir hann slíkan áhuga oft mælikvarða á hvað eigi við almenning, en þó séu einnig mál sem það eigi ekki við. Hann tekur þó fram að hann telji manndrápsmál eiga erindi við almenning alla jafna.

Nota oftast úrræðið sem gengur lengst

Þegar fyrrnefnd tölfræði er borin undir Flóka segir hann þetta vekja mann til umhugsunar um hvort þessi heimild sé notuð óhóflega. „Þannig sé lokun þinghalda að fullu það úrræði sem gangi lengst, en til séu önnur úrræði sem gangi skemur og að fyrst ætti að horfa til að beita þeim. Þar vísar hann til þess að loka þinghaldi að hluta eða meðan ákveðið vitni gefi skýrslu. Þá séu fordæmi fyrir tímabundnu banni við frásögn eða að banna alfarið frásögn af tilteknu atriði sem fram komi í málinu, en leyfa fjölmiðlum samt að fylgjast með þinghaldinu. „Það mætti útfæra þetta á ýmsa vegu. Þetta eru allt úrræði sem ganga skemur,“ segir Flóki.

Hann tekur þó fram að hin hliðin á peningnum sé persónuvernd og friðhelgi einkalífsins og að dómstólum beri að hafa það einnig í huga þegar kemur að dómsmálum og hvaða gögn og upplýsingar séu aðgengileg úr slíkum málum.

Flóki Ásgeirsson, lögmaður Blaðamannafélags Íslands.

Flóki Ásgeirsson, lögmaður Blaðamannafélags Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þannig eru til dæmis flestöll kynferðisbrotamál lokuð mál til þess að verja brotaþola og nöfn í slíkum málum jafnan afmáð úr dómum. Er það ekki síst vegna þess að oft í slíkum málum er það þannig að brotaþoli og gerandi þekkjast eða það eru tengsl á milli þeirra. Það að upplýsa um nafn geranda varpar því samhliða ljósi á nafn þolanda. Forræðismál og barnaverndarmál eru einnig oftast lokuð og nafnhreinsuð fyrir birtingu, enda eru það hagsmunir ólögráða barna að vera ekki nafngreind í slíkum málum.

Hingað til hefur venjan hins vegar verið sú að þinghald í alvarlegum ofbeldismálum og manndrápsmálum hefur verið opið. Það er vegna þess sem Flóki sagði áður, að sakborningar eiga rétt á opnu þinghaldi til að passa upp á réttláta málsmeðferð, en þekkt er úr löndum sem síður eru kennd við lýðræði að réttað er yfir fólki fyrir luktum dyrum til að fjölmiðlar geti ekki fylgst með og upplýst um framgang mála. Þá hafa slík alvarleg ofbeldismál þótt eiga erindi við almenning sem fær með þessu innsýn í þann raunveruleika sem á sér stað í þjóðfélaginu.

Fjöldi dóma ekki birtur

Fjölmiðlar hafa undanfarin ár bent á nokkur atriði sem hafa dregið úr möguleikum þeirra til að fylgjast með og greina frá því sem á sér stað innan veggja dómstóla. Í frétt á vef Rúv var meðal annars bent á það fyrir þremur árum að leynd hafi verið yfir 80% dóma sem kveðnir voru upp hjá Héraðsdómi Norðurlands vestra árið áður. 

Lengi vel voru talsverðir vankantar á birtingu dagskrár dómstóla, en eftir fréttaflutning setti dómstólasýslan sér reglur um samræmda birtingu dagskrár dómstóla. Þá hafa bæði Rúv og mbl.is fjallað um það þegar dómstólar hafa ákveðið að birta ekki dóma eða dregið það úr hófi að birta dóma sem fallið hafa. Þannig þurfti mbl.is að ýta á eftir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir tveimur árum til að fá niðurstöðu í fjárdráttarmáli fyrrverandi forseta bæjarstjórnar Fjallabyggðar og skrifstofustjóra Afls sparisjóðs á Siglufirði sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi og upptöku fjármuna, en hann var talinn hafa dregið sér 85 milljónir. Dómstjóri hafði reyndar ákveðið að birta ekki dóminn í því máli, þótt fá dæmi séu um að dómar í fjárdráttarmálum séu ekki birtir.

Fyrr á þessu ári gekk Rúv svo á eftir sama dómstól sem hafði dregið að birta 29 dóma, meðal annars yfir tvímenningum sem höfðu nokkrum mánuðum áður verið dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum árið 2021, en um var að ræða stærstu sprengju sinnar tegundar sem sprengd hafði verið hér á landi og olli hún milljóna tjóni.

Þess má geta að grunnregla um birtingu dóma í sakamálum er að birta þá innan fimm virkra daga eða í einhverjum tilfellum innan tveggja vikna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab