Hallaði réttu máli um viðskipti sín
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, seldi ásamt eiginkonu sinni 51% hlut í strandveiðiútgerðinni Sleppu ehf. til ungrar konu á 255 þúsund krónur í apríl í fyrra, sem er jafngildi nafnverðs hlutanna.
Kaupandi greiddi ekki krónu af kaupverðinu til hjónanna og hafði ekki enn gert það þegar samningnum var rift tæpu ári síðar, eða í mars sl. Unga konan gerði bátinn út sumarið 2025.
Þegar Morgunblaðið fjallaði um málið í fyrra vildi Sigurjón ekki tjá sig um viðskiptin, en áhöld voru um hvort um raunverulegan kaupsamning væri að ræða eða hvort hann væri sýndarsamningur til að gera ungu konunni kleift að róa fyrir Sigurjón.
Til að hafa heimild til að gera út strandveiðibát þarf að ráða yfir a.m.k. 51% hlut í honum, en ekki þótti vel fara á því að Sigurjón, sem þá var formaður atvinnuveganefndar, hefði svo ríkra persónulegra hagsmuna að gæta, samhliða því að fjalla um fyrirkomulag strandveiða í þinginu.
Í samtali við Vísi þá fullyrti Sigurjón að hann hefði fengið greiddar 16-18 milljónir króna frá ungu konunni fyrir hlutinn. Samkvæmt samkomulagi þeirra um riftun, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, var umsamið verð í kaupsamningi aftur á móti 255 þúsund krónur, greiðsla sem aldrei var innt af hendi.
Nánar má lesa um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
