Neysluhyggja næturinnar í Slökkvistöðinni
„Við Theresa erum búnar að vinna að þessari sýningu í langan tíma,“ segir Ingunn Fjóla um sýningu þeirra Theresu Himmer, en Theresa er vinstra megin á myndinni. Ljósmynd/Julia Lindemalm
„Slökkvistöðin hefur verið í rekstri sem sýningarrými í nokkur ár og hér eru vinnustofur arkitekta og ýmiss konar listamanna,“ segir danska listakonan Theresa Himmer í samtali við mbl.is, en þær Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir sitja fyrir svörum um sýninguna Endalok svefns í Slökkvistöðinni í húsnæði Áburðarverksmiðju ríkisins heitinnar í Gufunesi, þar sem þær sýna nú verk sín tengd svefni og tilraun markaðsaflanna til að brjóta sér leið inn í jafnvel þann helga tíma sem daglegur svefn er.
Var sýningin opnuð í gær, laugardaginn 21. Nóvember, og stendur laugardaga og sunnudaga frá klukkan 14 til 17, eða eftir samkomulagi, til 20. desember.
Theresa og Ingunn Fjóla eru báðar búsettar í Danmörku og báðar fæddar á því herrans ári 1976 og var Theresa nýverið í viðtali hér á mbl.is um þá ákvörðun Kópavogsbæjar að mála yfir listaverk hennar, Sólarslóð, í Hamraborg nú á haustdögum.
Listakonurnar harma þá stefnu Reykjavíkurborgar að segja upp leigu á ýmsum listarýmum í borginni, þar á meðal Slökkvistöðinni sem er sjálfstætt sýningar- og viðburðarými fyrir arkitekta og áhugafólk um arkitektúr og rýmislist. Sýning þeirra er nítjánda sýningin sem haldin er í Slökkvistöðinni og hefur fjöldi annarra viðburða einnig farið þar fram.
Þær listakonur sýta að borgin hafi sagt leigunni á Slökkvistöðinni upp, enda bjóði rýmið upp á fjölmarga möguleika á meðan Reykjavíkurborg saumar að vettvöngum listamanna. Ljósmynd/Julia Lindemalm
Upphaflega Marshall-aðstoðarfé
Framtíð Slökkvistöðvarinnar er sem stendur óráðin og harma þær stöllur uppsögnina auk þess að undrast hví borgin kjósi að sauma svo að menningar- og listalífi. „Þetta er líklegast síðasta sýningin og enginn veit hvað mun gerast eftir það,“ segir Ingunn Fjóla.
Áburðarverksmiðja ríkisins, sem hún hét þó ekki formlega fyrr en frá 1969, var vígð vorið 1954 og reist fyrir fé úr Marshall-aðstoðinni svokölluðu í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar sem Ísland naut að hluta góðs af. Snerist kveikjan að verksmiðjunni meðal annars um efnahagslegt sjálfstæði landsins og gjaldeyrissparnað við að ekki þyrfti að flytja allan áburð inn auk áherslu stjórnvalda á að efla íslenskan landbúnað eftir styrjöldina.
„Við Theresa erum búnar að vinna að þessari sýningu í langan tíma,“ segir Ingunn Fjóla, „við ræddum hvaða viðfangsefnum við gætum unnið út frá saman og komumst að því að við höfum báðar mikinn áhuga á svefni og vangaveltum í kringum svefn,“ segir hún og varð úr að svefninn varð grunntónn sýningarinnar.
Reynt að gera okkur að neytendum
„Svefninn, myrkrið og rými næturinnar,“ tekur Theresa við og segir hluta undirbúningsins hafa falist í að lesa greinar, svo sem bók bandaríska listfræðingsins og menningarrýnisins Jonathans Crary, prófessors í nútímalist og listfræði við Columbia-háskólann í New York, 24/7: Late Capitalism and the Ends of Sleep.
„Hann fjallar um svefninn og nóttina sem síðasta frjálsa rými mannkyns frá neyslumenningunni,“ segir Theresa, „Mörg öfl samfélagsins eru að reyna að gera okkur að neytendum, líka á nóttunni,“ segir hún enn fremur og Ingunn Fjóla segir tilhneiginguna orðna þá að líta á svefnstundir sem tímasóun. „Neyslusamfélagið vill að við séum alltaf að keyra áfram,“ bendir hún á.
Þessir koparþræðir sýna hvenær Ingunn Fjóla sefur, sé mark að snjallúri hennar. Ljósmynd/Julia Lindemalm
Á sýningunni tefla þær fram þremur verkum hvor og sýnir eitt þeirra svefn Ingunnar Fjólu í eitt ár. Hún skrásetti svefn sinn með snjallúri og notar 365 koparþræði, einn fyrir hvern dag, til að sýna svefn sinn og vöku. Hanga þræðirnir niður úr lofti rýmisins og eru naktir þegar hún vakir, en umluktir svartri plasthulsu þegar hún sefur.
Hið alltumlykjandi rafmagn
„Þarna bendi ég líka á hvað rafmagnið er orðið alltumlykjandi. Meira að segja þegar við sofum erum við með snjallúr og síma allt í kringum okkur til að skrásetja og reyna að skilja,“ segir Ingunn Fjóla.
Eitt verka Theresu er stálhringur með ljósum úr silíkonhúð sem hlaðin er sjálfljómandi efni og vísar silíkonið til barnaleikfanga sem gerð eru til að kreista, örva og róa. „Útgangspunkturinn þar er mitt eigið umhverfi og það sem hefur verið nálægt mér síðasta árið í gegnum líf dóttur minnar, en vísar til forunglingamenningar [e. pre-teen culture] okkar tíma,“ útskýrir Theresa.
Slökkvistöðin, kuldaleg að utan, hlýlegri að innan, alltént meðan á sýningunni stendur. Framtíð húsnæðisins er óráðin. Ljósmynd/Julia Lindemalm
Þær sýna svo eitt sameiginlegt verk, tvær ljósaraðir, eina frá hvorri listakonu, önnur sem líkir eftir sólarhringsbirtunni á Íslandi á þeim tíma sem nú fer í hönd, svartasta skammdeginu sem kallað er, en er hraðað upp þannig að sólarhringur líður á hálftíma. Lýsir verkið því hvernig mannfólkið stýrir lífi sínu með rafmagni og vinnur þar oftar en ekki gegn myrkrinu.
Ingunn Fjóla og Theresa halda báðar heim til Danmerkur eftir helgi, en sem fyrr segir er sýningin opin til 20. desember á föstum tímum um helgar, en annars eftir samkomulagi fyrir þá sem áhuga hafa á að koma utan þess tíma og kynna sér hugmyndir tveggja listakvenna í Danmörku um neysluhyggju næturinnar, rafmagn í nútímasamfélagi, ljós og skugga.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


