Fox-fréttamaður bætist í hóp þeirra sem gagnrýna GTA 6 - „Hannað til að gera karlmenn að kerlingum“

Tölvuleikurinn Grand Theft Auto VI (GTA6) er loksins kominn út eftir 13 ára bið. Vinsældir leiksins eru gríðarlegar. Gagnrýnendur eru í skýjunum og kalla leikinn sannkallað meistaraverk sem hafi verið biðarinnar virði.

En það eru ekki allir sammála. Sumum aðilum sem teljast til fjarhægrisins í Bandaríkjunum er gróflega misboðið yfir því að í leiknum sé nú lögð áhersla á samkennd, að þar sé ætlast til að aðalpersónan sinni heimilisverkum og komi vel fram við kærustu sína og að ekki sé hægt að eiga viðskipti við vændiskonur eins og í fyrri leikjunum. Hafa sumir gagnrýnendur úr þessari átt líkt leiknum við lífherminn The Sims og sagt það niðurlægjandi að aðalpersónan eigi að sinna útréttingum fyrir kærustu sína og kaupa handa henni blóm.

Fréttamaður Fox, Joey Jones, er ekki hrifinn af leiknum, en ekki af framangreindum ástæðum. Jones var gróflega misboðið þegar hann heyrði af því að fólk hefði tekið sér frí frá vinnu til að spila leikinn daginn sem hann kom út.

„Ég held að bæði golf og tölvuleikir hafi verið hönnuð til að gera karlmenn að kerlingum og koma í veg fyrir að við gerum hluti á borð við að byggja, laga og skapa.“

Jones harmaði svo þá staðreynd að hans eigin sjónvarpsstöð væri að fjalla um gríðarlegar vinsældir leiksins.

„En vitið þið hvað Grand Theft Auto er þekktur fyrir? Hann er þekktur fyrir siðleysi. Það er það sem gerði hann vinsælan til að byrja með, að maður geti farið þarna og gert hræðilega hluti án afleiðinga. Og bara þessi sálrænu áhrif á unga Bandaríkjamenn, kannski er það ástæðan fyrir því að við erum sífellt að tapa stríðum. Ég veit ekki, en þetta hefur klárlega skaðleg áhrif.“

Gagnrýni hægrimanna virðist skiptast í tvennt. Annars vegar þeir sem eru ósáttir við að leikurinn sé vók, að það sé búið að flækja ástarsögu inn í hann og að leikmönnum sé bannað að halda framhjá kærustu sinni með vændiskonu. Svo eru það eldri kynslóðirnar sem eru, líkt og þegar fyrri leikirnir komu út, ósáttar við ofbeldið sem er þar að finna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab