Ómetanlegt starf fyrir börn

Viðurkenning Arnrún María Magnúsdóttur og Eva Rós Ólafsdóttir.

Viðurkenning Arnrún María Magnúsdóttur og Eva Rós Ólafsdóttir.

Arnrún María Magnúsdóttir leikskólakennari og Bergið headspace hlutu í gær viðurkenningu Barnaheilla 2026, fyrir ómetanlegt starf í þágu barna og elju þeirra við að bæta samfélagið börnum í hag.

Arnrún María er leikskólakennari, stofnandi Samtalsins – fræðsla ekki hræðsla og höfundur Lausnahringsins. Hún hefur starfað með börnum og fjölskyldum frá árinu 1992 og leggur áherslu á að forvarnir hefjist snemma í lífi ungra barna, með daglegum samskiptum.

Bergið headspace veitir ungu fólki á aldrinum 12-25 ára ókeypis, faglega og aðgengilega ráðgjöf við hvers kyns áskorunum lífsins. Hjá Berginu þarf hvorki tilvísun né greiningu til að fá stuðning og engin vandamál eru of lítil til að ræða þau.

Markmið Bergsins er að skapa öruggt rými þar sem ungt fólk fær hlustun, stuðning og tækifæri til að takast á við áskoranir á eigin forsendum. Þjónustan byggist á snemmtækum stuðningi, valdeflingu og þeirri trú að öll ungmenni eigi rétt á aðgengilegri geðheilbrigðisþjónustu þegar þau þurfa á henni að halda.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab