Silja krefst þess að hjólabúar fái rafmagnið aftur eftir eldsvoðann í dag - Meirihlutinn ítrekað varaður við hættunni
Ritstjórn DV
Sunnudaginn 22. nóvember 2026 22:54
Silja Sóley Birgisdóttir.
Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, krefst þess að hjólabúar á Sævarhöfða fái aftur rafmagn. Meirihlutinn í borginni hafi ítrekað verið varaður við því að líkur á eldsvoða myndu aukast þegar slökkt var á rafmagni fyrir hjólhýsabyggðina.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eld í húsbíl á Sævarhöfða skömmu fyrir klukkan 13 í dag. Töluverður reykur barst frá húsbílnum og eldur logaði inni í honum. Sem betur fer var enginn í bílnum þegar eldurinn kom upp og engan sakaði. Slökkvistarf gekk vel og tók stuttan tíma. Eldsupptök eru til rannsóknar hjá lögreglunni.
Lokað var fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða í byrjun nóvember, en sú ákvörðun borgarinnar hefur sætt mikilli gagnrýni og meirihlutinn sakaður um mannvonsku.
Silja Sóley skrifar á Facebook:
„Ítrekað hefur verið reynt að vara meirihlutann við því að líkur á eldsvoða myndu aukast í kjölfar þess að slökkt var á rafmagni fyrir hjólhýsabyggðina. Nú þurfa íbúar að reiða sig á hættulegri leiðir til að hita upp híbýli sín og nú hefur kviknað í. Lukkulega var enginn inni í vagninum en enn er hætta. Rafmagnið á strax!“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗