Minntust Guðjóns á fallegan hátt
Enska knattspyrnufélagið Stoke City minntist Guðjóns Þórðarsonar í heimaleik sínum gegn Birmingham City í B-deildinni í gær með lófataki í eina mínútu.
Á meðan á lófatakinu stóð var sýnt skemmtilegt myndband af góðum tímum Guðjóns hjá enska liðinu sem James O'Hara birti sem svar við færslu um Guðjón frá reikningnum Höllin er úrelt á samfélagsmiðlinum X.
Stoke vann 1:0-sigur í leiknum og er í 2. sæti ensku B-deildarinnar með 32 stig, jafnmörg stig og topplið Middlesbrough.
@Nyjahollstrax Today at Stoke 😢👏💔 https://t.co/Ly63InM9Uy
— James O'Hara (@jamesjohara) November 21, 2026
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗