Plantar enn fræjum um samstarf
„Ég stakk einu sinni upp á því að við gætum gert eitthvað saman, en hann er með sín eigin verkefni og ég líka. Hver veit? Við höfum rætt þetta nokkrum sinnum, en það er ákveðinn blær á þeirri tegund tónlistar sem hann vill spila, sem er í raun frábrugðinn því sem ég fæst við. Ég útiloka samt ekkert í þessum efnum. Ef eitthvað kemur upp sem er góð hugmynd og einhver hefur áhuga á því, þá er ég til í að prófa.“
Þannig svaraði Tony Iommi, gítar leikari Black Sabbath, í nýju viðtali fyrirspurn bandaríska blaðsins Los Angeles Times þess efnis hvers vegna þeir Robert Plant, söngvari Led Zeppelin, hefðu aldrei unnið saman. Svo sem ekki spurning sem Iommi var að fá í fyrsta skipti en margir hafa velt þessu fyrir sér gegnum tíðina vegna vináttu og almenns návígis þeirra félaga alla tíð. Þeir fæddust sama árið, 1948, á svo til sama blettinum á Englandi – Iommi í Birmingham en Plant í West Bromwich.
Þeir rákust í sömu kreðsum sem unglingar og ungir menn en í endurminningum sínum, Tony Iommi: Iron Man, lætur Iommi þess þó getið að Plant hafi verið meiri vinur Geezers Butlers bassaleikara Black Sabbath á þeim tíma. Þeir voru í ýmsum hljómsveitum og komu reglulega fram í sömu tónleikasölum.
Bonham rekinn úr öllum böndum
John heitinn Bonham, trymbill Led Zeppelin, óx líka úr grasi í grenndinni og var í hinum ýmsu böndum á unglingsárum. Í endurminningum sínum fullyrðir Iommi raunar að hann hafi verið rekinn úr þeim flestum „eftir fimm mínútur“ vegna þess hvað hann var hávær og lamdi húðirnar svo fast.
„Þegar við vorum að spila á klúbbum kom John stundum með og vildi koma upp á svið og spila með okkur,“ sagði Iommi einu sinni í samtali við Classic Rock. „Í fyrsta skiptið sögðum við: ‚Allt í lagi.‘ Hann fór því upp á svið, settist við trommusett Bills [Ward, trommuleikara Sabbath] og gjörsamlega rústaði því. Bill var ekki skemmt, þannig að eftir þetta, í hvert sinn sem John kom og spurði: ‚Má ég spreyta mig?‘, sagði Bill bara nei og leyfði honum ekki að spila.“
Nánar er fjallað um Iommi, Plant og aðra gamla Birmingham-rokkara í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
