„Hefðum getað skorað fleiri mörk“
Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, var kátur eftir 4:0-sigurinn á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
„Ég naut leiksins virkilega í dag. Ég á enn margt eftir ólært en mér fannst við þurfa að fagna á þessari stundu. Það var virkilega gaman að njóta augnabliksins með stuðningsmönnunum. Stuðningsmennirnir áttu þetta skilið.
Við höfum staðið okkur mjög vel á útivöllum en ekki nógu vel á heimavelli. Það er alltaf stórleikur þegar við mætum Manchester United," sagði Spánverjinn í viðtali eftir leikinn.
„United var vissulega manni færri stærstan hluta leiksins en við þurftum engu að síður að sinna okkar verkefni. Við sköpuðum nógu mörg færi til að skora meira en fjögur mörk en nýttum þau ekki.
Við þurfum að vera grimmari fyrir framan markið en sem betur fer kom það ekki að sök í dag,“ bætti hann við.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗