Fyrsta konan sem fór umhverfis tunglið verðlaunuð á Húsavík

Bandaríski geimfarinn Christina Koch hlaut Landkönnunarverðlaunin 2026 á Landkönnunarhátíð Húsavíkur í gærkvöldi.

Bandaríski geimfarinn Christina Koch hlaut Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar á Húsavík í gærkvöldi. Koch varð í apríl síðastliðnum fyrsta konan í sögunni til að ferðast umhverfis tunglið þegar hún tók þátt í Artemis II leiðangri NASA.

Verðlaun fyrir bestu kvikmyndir Landkönnunarhátíðarinnar voru einnig afhent, en alls voru 36 kvikmyndir frá 15 löndum sýndar á hátíðinni í ár.

Viljinn til að fara út fyrir hið kunnuglega

Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar voru afhent í gærkvöldi og hlaut geimfarinn Christina Koch aðalverðlaun ársins fyrir framlag sitt til landkönnunar og geimrannsókna.

Koch varð í apríl fyrsta konan til að ferðast umhverfis tunglið sem hluti af fjögurra manna áhöfn Artemis II. Leiðangurinn markaði jafnframt fyrstu mannaferðina til tunglsins í meira en hálfa öld.

Í ávarpi sínu sagði Koch sérstaka merkingu felast í því að taka við verðlaunum sem bæru nafn Leifs Eiríkssonar. Fyrir meira en þúsund árum hefðu hann og aðrir norrænir landkönnuðir lagt af stað út í hið óþekkta af hugrekki, forvitni og vilja til að fara út fyrir hið kunnuglega, sömu mannlegu eiginleikar hefðu knúið áfram hennar eigin draum um landkönnun.

Þessi mynd var tekin af geimförum Artemis II leiðangursins.

Þessi mynd var tekin af geimförum Artemis II leiðangursins. AFP

Koch vitnaði jafnframt í Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í ávarpi sínu og orð hennar um að auðmýkt þurfi að haldast í hendur við hugrekki og hugrekki við auðmýkt.

„Ég gæti ekki verið meira sammála og það er skuldbinding mín gagnvart þér að leitast við að lifa eftir þessum orðum sem hluta af þeirri ábyrgð sem fylgir þessari viðurkenningu,“ sagði Koch.

Hún lagði jafnframt áherslu á að enginn áfangi í landkönnun næðist af einum einstaklingi. Hún deildi heiðrinum með þeim þúsundum samstarfsfólks og alþjóðlegra samstarfsaðila sem gera mannaðar geimferðir mögulegar og sagði ánægjulegt að sjá þjóðir heims, þar á meðal Ísland, sameinast um framtíð landkönnunar með Artemis-samkomulaginu og öðru alþjóðlegu samstarfi.

„Saga landkönnunar er að lokum saga mannkynsins. Hún tilheyrir ekki aðeins þeim sem ferðast heldur líka þeim sem ímynda sér, styðja, kenna og veita öðrum innblástur,“ sagði Koch og lauk ávarpi sínu á íslensku: „Takk fyrir.“

Kvikmyndin Catching Pinecones var valin besta kvikmynd Landkönnunarhátíðar Húsavíkur 2026.

Kvikmyndin Catching Pinecones var valin besta kvikmynd Landkönnunarhátíðar Húsavíkur 2026.

Catching Pinecones valin besta kvikmyndin

Kvikmyndaverðlaun Landkönnunarhátíðar voru einnig afhent í gærkvöldi. Bandaríska heimildamyndin Catching Pinecones var valin besta mynd hátíðarinnar en hún segir sögu Jan og Herb Conn sem voru brautryðjendur í klettaklifri og könnun hella. Bretinn Mark Craig hlaut verðlaun sem besti leikstjórinn fyrir Apollo 1.

Verðlaunahafar kvikmyndahátíðarinnar 2026 voru:

  • Besta mynd: Catching Pinecones
  • Besti leikstjóri: Mark Craig fyrir Apollo 1
  • Besta vísindamyndin: The Coral & The Copepod
  • Besta frumsamda tónlist: Justin Wright fyrir Numb Fingers
  • Besta kvikmyndataka: Eduardo Ascenso Pires fyrir Portúgölsku myndina The Weather Man
  • Besta klipping: Pólska heimildamyndin Lodołamacz

Tólftu Landkönnunarhátíðinni á Húsavík lauk í dag eftir fimm daga dagskrá.

Besti leikstjórinn var valinn Mark Craig fyrir Apollo 1 á Landkönnunarhátíð Húsavíkur 2026.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab