Tengslin við náttúruna eru leiðandi stef

Ísey Ava skoðar gersemar sem finnast í sandinum í Sólheimafjöru.

Ísey Ava skoðar gersemar sem finnast í sandinum í Sólheimafjöru. Ljósmynd/Linda Ásgeirsdóttir

„Þegar maður er búinn að vera að framleiða barnaefni í yfir 20 ár þá er maður alltaf að leita að góðum sögum og hugmyndum. Ég tengist Íseyju Övu fjölskylduböndum og mér fannst hún og fjölskyldan svo frábær og þá kom þessi hugmynd upp, að mynda hana,“ segir Linda Ásgeirsdóttir, leikstjóri og framleiðandi heimildarmyndarinnar Íseyjar: Náttúrubarns.

Í myndinni er fylgst með hinni fimm ára gömlu Íseyju Övu og fjölskyldu hennar en móðirin er íslensk og faðirinn eistneskur og á heimilinu eru töluð þrjú tungumál. Linda segir að upphaflega hafi það verið fjölmenning og fjöltyngi fjölskyldunnar sem hafi heillað hana.

„Ég sá fljótt að það geta orðið svo skemmtileg ævintýri þegar þú átt foreldra frá tveimur ólíkum menningarheimum, en fljótlega sá ég að náttúran spilaði mjög stórt hlutverk í lífi fjölskyldunnar,“ segir hún og bætir við að landslagið á Íslandi og í Eistlandi rammi myndina inn. Í myndinni er fylgst með lífi Íseyjar Övu og áhorfendur tengjast lífi hennar í gegnum leik og uppgötvanir og samskipti hennar við umhverfið.

Linda, ásamt Kolbrúnu Önnu Björnsdóttur, unnu hugmyndavinnu heimildarmyndarinnar en auk þeirra eru í teyminu Viktor A. Bogdanski sem sér um kvikmyndatöku og klippingu; Alisdair Wright semur tónlist og annast hljóðvinnslu; Kristján U. Kristjánsson sér um grafíska hönnun; Michal Jaworski sér um sjónræna hönnun; og Aðalheiður Kristbjörg Jensdóttir, meðframleiðandi og sér um viðskiptaþróun og samstarf við innlenda og erlenda samstarfsaðila.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab