Kynlíf eldra fólks alls ekki síðra
Hver sagði að besta kynlífið væri aðeins það sem þú stundar á tvítugs- og þrítugsaldri? Þvert á það sem margir halda getur kynlífið orðið bæði betra, innihaldsríkara og ánægjulegra eftir því sem árin líða. Með aukinni sjálfsþekkingu, sjálfstrausti og góðum samskiptum geta bestu árin í svefnherberginu jafnvel verið fram undan.
Það er ýmislegt spennandi við að eldast. Með hverju árinu verður maður gjarnan öruggari í eigin skinni, öðlast meiri visku og á auðveldara með að standa með sjálfum sér. Við lærum betur inn á eigin þarfir, vitum hvað við viljum og erum síður hrædd við að segja það upphátt. Allt þetta getur haft jákvæð áhrif á lífsgæðin og ekki síst kynlífið.
Þrátt fyrir hugmyndir um að kynferðislegur blómatími fólks sé á þrítugsaldri er raunveruleikinn mun flóknari. Kynferðisleg löngun og ánægja fylgja ekki einni ákveðinni aldurskúrfu og margt bendir til þess að reynsla og aukin sjálfsþekking geti gert kynlífið enn betra með aldrinum. Þetta kemur fram hjá bandaríska tímaritinu Cosmopolitan.
„Konur á fimmtugs- og sextugsaldri vita oft miklu betur hvað þær vilja en þær gerðu á þrítugsaldri,“ segir Gemma Nice, kynlífs- og sambandsráðgjafi, í samtali við Cosmopolitan.
Hún segir að áherslurnar breytist gjarnan með aldrinum. Í stað þess að einblína á útlit, frammistöðu eða að koma sér sem fyrst að sjálfum samförunum fari fólk að leggja meiri áherslu á nánd, skynjun og raunverulega ánægju.
Rannsóknir benda til þess að kynferðisleg löngun geti verið mikil á fertugs- og fimmtugsaldri, bæði hjá körlum og konum. Þótt tíðni kynlífs minnki að meðaltali með aldrinum þýðir það alls ekki að ánægjan þurfi að minnka samhliða. Það er vel hægt að njóta innihaldsríks, spennandi og fullnægjandi kynlífs langt fram eftir aldri.
En hvernig er best að viðhalda neistanum?
Lærðu að vinna með líkamanum
Eitt af því sem óhjákvæmilega fylgir aldrinum eru breytingar á líkamanum. Þótt hollt mataræði, regluleg hreyfing og góð heilsa geti hjálpað okkur að viðhalda styrk og liðleika verða ákveðnar líkamlegar breytingar ekki umflúnar.
Í stað þess að líta á þær sem hindrun í kynlífinu er mikilvægt að læra að aðlagast þeim.
Hjá konum geta breytingaskeiðið og árin þar á undan haft áhrif á kynlífið. Hormónabreytingar geta meðal annars valdið þreytu, minni kynlöngun, þurrki í leggöngum og ýmsum líkamlegum og tilfinningalegum einkennum.
En það er ýmislegt hægt að gera. Stundum getur verið nóg að breyta tímasetningu kynlífsins, gefa sér meiri tíma í forleik, prófa nýjar leiðir til örvunar eða nota gott sleipiefni.
„Tíðahvörf breyta því hvernig kynfærin bregðast við örvun, en snípurinn missir ekki taugaenda sína,“ útskýrir Nice. „Minna blóðflæði getur einfaldlega þýtt að örvunin taki lengri tíma og krefjist meiri athygli.“
Mikilvægast er að gera sér grein fyrir því að breytingar á líkamanum þurfa ekki að þýða minni kynferðislega ánægju. Þær geta einfaldlega kallað á nýjar aðferðir.
Prófaðu nýjar stellingar
Það sem var auðvelt á þrítugsaldri er ekki endilega jafn þægilegt á sextugsaldri. Hné, mjaðmir og bak geta orðið viðkvæmari og sumar kynlífsstellingar því reynst erfiðari en áður.
Maghan Burge hjúkrunarfræðingur segir mikilvægt að laga kynlífsstellingar að líkamlegri getu.
„Stellingar sem voru auðveldar við 25 ára aldur geta reynt verulega á hné, mjaðmir og bak við fimmtugt,“ segir hún.
Hún mælir með því að fólk gefi sér góðan tíma og nýti púða eða sérstaka stuðningspúða til að minnka álag á liðamót.
Það sé jafnframt mikilvægt að losna við þá hugmynd að kynlíf verði eitthvað minna spennandi þótt fólk þurfi að gera ákveðnar breytingar.
„Þetta er ekki merki um að eitthvað sé að. Þetta er einfaldlega hluti af því að hugsa vel um líkamann, rétt eins og að teygja fyrir hlaup,“ segir Burge.
Svefnherbergið skiptir meira máli en þú heldur
Umhverfið getur haft meiri áhrif á kynlöngun en margir gera sér grein fyrir.
Svefntruflanir, nætursviti og verkir í baki eða mjöðmum geta gert rúmið að síðasta staðnum þar sem fólk hefur áhuga á líkamlegri áreynslu.
Burge bendir á að einfaldar breytingar á svefnherberginu geti skipt miklu máli.
Kælandi rúmföt, vifta, efni sem anda vel og góðir stuðningspúðar geta aukið þægindi og bætt svefninn.
„Þetta hljómar kannski ekki sérstaklega kynþokkafullt, en fólk sem sefur vel og finnur síður fyrir verkjum hefur mun meiri áhuga á líkamlegri nánd,“ segir hún. Gott kynlíf byrjar því stundum á því að skapa aðstæður þar sem líkamanum líður vel.
Samskipti eru lykillinn að góðu kynlífi
Þegar fólk hefur verið lengi í sambandi geta hversdagslegar skyldur auðveldlega tekið yfir. Börn, vinna, heimilishald og þétt dagskrá skilja oft lítið svigrúm eftir fyrir rómantík.
En samkvæmt Burge er lykillinn að góðu kynlífi ekki endilega að finna meiri tíma heldur að leggja meiri rækt við samskiptin. Það skiptir máli hvernig við komum fram við hvort annað yfir daginn.
Hlýja, umhyggja, snerting og tilfinningin fyrir því að vera saman í liði geta lagt grunninn að nánd síðar um kvöldið.
Það er líka mikilvægt að ræða opinskátt um væntingar og langanir. Hvernig viljið þið að kynlífið ykkar þróist? Hvað veitir ykkur ánægju? Hvað hefur breyst og hvað langar ykkur að prófa?
Ekki þurfa öll kvöld að enda með kynlífi. Stundum getur verið jafn mikilvægt að kúra saman, kyssast, nudda hvort annað eða einfaldlega njóta þess að vera nálægt hvort öðru.
„Að viðhalda snertingu og nánd í hversdeginum, án þess að telja skiptin, er það sem heldur stærri stundunum lifandi,“ segir Burge.
Einföld æfing sem getur aukið nándina
Nice mælir með einfaldri æfingu sem getur hjálpað pörum að tengjast betur, sérstaklega þegar álag hversdagsins hefur tekið sinn toll.
Æfingin felst í því að annar aðilinn situr með krosslagða fætur á meðan hinn sest klofvega í fang hans. Parið horfist síðan í augu og reynir að samstilla öndunina í nokkrar mínútur. Markmiðið er ekki endilega að æfingin leiði til kynlífs heldur að skapa ró, öryggi og líkamlega tengingu.
Að sögn Nice getur slík nánd hjálpað fólki að slaka á og beina athyglinni aftur hvort að öðru.
Þegar líkamleg snerting er reglulegur hluti af sambandinu verður kynlífið síður eitthvað sem þarf að undirbúa sérstaklega. Nándin er þá þegar til staðar.
Sjálfstraustið getur gert kynlífið betra en nokkru sinni fyrr
Það er þó ekki bara fólk í löngum samböndum sem getur notið betra kynlífs með aldrinum. Fólk sem er einhleypt eða í lauslegri samböndum getur einnig upplifað aukið kynferðislegt frelsi eftir því sem árin líða.
„Þegar þú hættir að reyna að vera sú manneskja sem þú varst á þrítugsaldri og áttar þig á því hvað þú raunverulega vilt, öðlast þú frelsi til að sækjast eftir því kynlífi sem þig hefur lengi langað í,“ segir Nice.
Hún telur að þessi aukna sjálfsþekking geti gert kynlífið frelsandi á alveg nýjan hátt.
Kannski er það einmitt stærsti kosturinn við að eldast. Við verðum öruggari í eigin skinni, hættum að bera okkur jafn mikið saman við aðra og lærum að njóta þess sem okkur þykir gott.
Að eldast þarf því alls ekki að þýða að kynlífið verði leiðinlegra. Þvert á móti geta reynsla, sjálfstraust, nánd og betri samskipti gert það ánægjulegra en nokkru sinni fyrr. Besta kynlíf lífsins gæti einfaldlega enn verið fram undan.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗