Tenerifeflugið er sterkur leikur
Vikulegt áætlunarflug Icelandair milli Akureyrar og Tenerife að ári er jákvæð viðbót. Þetta segir Ingi Þór Guðmundsson, eigandi og framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Nonna Travel á Akureyri.
Flug frá Norðurlandi til Suður-Evrópu og þá aðallega Spánar hafi nokkrum sinnum verið reynt með góðum árangri, þá leiguferðir eða afmörkuð verkefni. Þá hafi verið þreifingar um að Play hæfi áætlunarflug frá Akureyrarflugvelli til Spánar, rétt áður en félagið varð gjaldþrota á síðasta ári.
Fólk af Norður- og Austurlandi sækir mikið til sólarlanda, eins og aðrir. Á Tenerife má oft sjá Akureyringum eða úr byggðum þar í kring bregða fyrir á ströndum og strætum sólareyjunnar. Í þessum landshlutum á Íslandi er 40.000 til 50.000 manna markaður, segir Ingi Þór, og hjá Icelandair er sterkur leikur að sinna þessum viðskiptavinum vel.
„Það sem vekur eftirtekt nú er að ferðir Icelandair til Tenerife frá Akureyri, sem hefjast í október á næsta ári og standa fram á vorið 2028, eru áætlunarflug,“ segir Ingi Þór Guðmundsson.
„Ég veit að oft hefur verið þrýst á Icelandair að hefja áætlunarflug til ýmissa staða erlendis út frá Akureyri og Egilsstöðum. Svörin hafa þó jafnan verið að miðstöð og tengipunktur starfs félagsins sé Keflavíkurflugvöllur. Á því byggist viðskiptahugmynd félagsins að tengja saman, frá þeim stað, Evrópu og Norður-Ameríku. En nú er brugðið út af vananum, sem er fagnaðarefni.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗