Undarlegt fagn ungstirnisins vekur athygli
Spænski knattspyrnumaðurinn Lamine Yamal vakti mikla athygli fyrir óvenjulegt fagn eftir dramatískan 3:2 sigur Barcelona á Villarreal í efstu deild spænska fótboltans í dag.
Barcelona vann leikinn eftir að hafa lent 2:0 undir í fyrri hálfleik. Yamal fékk meðal annars tækifæri til að minnka muninn úr vítaspyrnu en brást bogalistin.
Gerard Martín minnkaði muninn á 57. mínútu og Fermín López jafnaði metin fjórum mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Yamal.
Yamal fagnaði markinu með því að stinga boltanum undir treyjuna á sér. Liðsfélagi hans, Fermín López, virtist hins vegar ekki átta sig á athæfinu og horfði undrandi á félaga sinn.
Barcelona tryggði sér síðan sigur með sjálfsmarki Villarreal á 67. mínútu. Liðið situr nú á toppi deildarinnar með þriggja stiga forskot á Real Madrid.
Fagnið hefur jafnframt vakið vangaveltur um einkalíf Yamal, ekki síst samband hans við kærustu sína, Inés García.
Sumir hafa velt því fyrir sér hvort hann hafi verið að senda persónuleg skilaboð með faginu og hvort það tengist sambandi þeirra.
Yamal hefur þó ekki tjáð sig um hvað bjó að baki faginu og ekkert hefur verið staðfest um að það tengist ástarlífi hans. Vangaveltur um slíkt eru því enn á huldu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗