Oft stafar fallegri birtu við Drangey

Falleg og formfögur er eyjan, hvar sem til hennar er litið, á þessari mynd í blóðrauðu sólarlaginu. mbl.is/Sigurður Bogi

„Drangey hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu,“ segir Kristján Eiríksson fræðimaður. Út er komin hjá forlaginu Sæmundi Drangeyjarsaga, saga eyjunnar sem setur sterkan svip á umhverfið í Skagafirði og á ríkan þátt í menningu héraðsins. Margt hefur verið skrifað um eyjuna í tímans rás en sérstakur veigur er í bók Kristjáns, svo nærri er hann umhverfi hennar og sögu.

Grettir, Illugi og Glaumur

Kristján Eiríksson er frá Fagranesi á Reykjaströnd í vestanverðum Skagafirði, ekki langt norðan við Sauðárkrók. Þaðan blasir Drangey við úti á miðjum firði, eyjan þar sem Grettir Ásmundarson hélt til með Illuga bróður sínum og þrælnum Glaumi á fyrri hluta 11. aldar. Þar voru þeir bræður svo að lokum vegnir þegar Þorbjörn öngull og menn hans komu að þeim óvörum. Hafði þá Grettir áður unnið ýmis frækin afrek, svo sem að synda til lands upp til Reykja á Reykjaströnd þegar elds var vant í eynni.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab