Kristall skoraði í markaleik
Kristall Máni Ingason skoraði annað mark Brann af vítapunktinum í 4:3-útisigri liðsins gegn KFUM Oslo í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Kristall Máni meiddist í sigri Íslands á Búlgaríu í Þjóðadeildinni og missti af seinni leiknum gegn Lúxemborg en sem betur fer reyndust meiðslin ekki alvarleg.
Kristall var í byrjunarliði Brann í dag og lék allan leikinn. Sævar Atli Magnússon kom inn á sem varamaður á 71. mínútu. Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson eru frá vegna meiðsla og voru ekki í leikmannahópi Brann í dag.
Brann er í 7. sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 36 stig. Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Rosenborg eru í 4. sæti með 47 stig eftir 2:2 jafntefli gegn Aelesund í dag.
Með sigri hefði Rosenborg farið upp í 3. sætið en liðið fékk á sig svekkjandi jöfnunarmark í uppbótartíma. Ólafur Guðmundsson sat allan tímann á bekknum hjá Aelesund.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗