Póstberinn fann óhugnanleg skilaboð á útidyrunum – Hryllingur blasti við innandyra
Nýlega hringdi póstberi í lögregluna í New Jersey í Bandaríkjunum og tilkynnti um óhugnanleg skilaboð sem hann fann á útidyrum húss eins við Winding Way í Mount Holly.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá saksóknaraembættinu í Burlington County.
Póstberinn sá handskrifað blað á útidyrunum. Á því stóð „9-1-1 inni,“ og tvö dapurleg andlit höfðu verið teiknuð neðst. Ekki er vitað hver skrifaði skilaboðin.
Lögreglumenn fóru strax á vettvang og fundu þrjár látnar manneskjur inni í húsinu.
David Babock, nágranni, sagði fréttamönnum að tveir bræður og systir þeirra hefðu búið í húsinu. Þau voru öll á sjötugsaldri.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗