Borgin þarf að bjóða út að nýju og greiða milljón
Innkaupin varða útvegun og uppsetningu búnaðar á gatnamótum Snorrabrautar og Hverfisgötu annars vegar og Snorrabrautar og Laugavegar hins vegar vegna fyrstu lotu Borgarlínu. Ljósmynd/Colourbox
Kærunefnd útboðsmála hefur fellt úr gildi innkaupaferli Reykjavíkurborgar vegna umferðarljósabúnaðar á tvennum gatnamótum við Snorrabraut.
Nefndin lagði fyrir borgina að bjóða innkaupin út að nýju á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Borginni var jafnframt gert að greiða Reykjafelli eina milljón króna í málskostnað.
Innkaupin varða útvegun og uppsetningu búnaðar á gatnamótum Snorrabrautar og Hverfisgötu annars vegar og Snorrabrautar og Laugavegar hins vegar vegna fyrstu lotu Borgarlínu. Borgin sendi völdum fyrirtækjum verðfyrirspurn 3. júlí. Reykjafell var á meðal þeirra og kærði innkaupaferlið 23. júlí.
mbl.is greindi frá því 14. nóvember að nefndin hefði stöðvað innkaupaferlið tímabundið meðan kæran væri til meðferðar. Sú ákvörðun var tekin 21. september. Úrskurðurinn um ógildingu innkaupaferlisins er dagsettur 9. nóvember og var birtur 20. nóvember.
Innkaup á tólf mánuðum réðu úrslitum
Reykjavíkurborg taldi að innkaupin féllu undir sérreglur um innkaup vegna flutningsþjónustu og að hærri viðmiðunarfjárhæð ætti því við. Nefndin hafnaði því á þeirri forsendu að búnaðurinn væri ætlaður til að stýra umferð á gatnamótum í almennu gatnakerfi borgarinnar.
Við mat á útboðsskyldu leit nefndin til þess að borgin endurnýjar reglulega umferðarljósabúnað á ýmsum gatnamótum. Samningar borgarinnar um kaup á slíkum búnaði námu 59,1 milljón króna án virðisaukaskatts á tólf mánuðunum áður en verðfyrirspurnin var send út.
Viðmiðunarfjárhæð sveitarfélaga vegna vörusamninga var 31,9 milljónir króna. Með hliðsjón af umfangi sambærilegra innkaupa á tímabilinu taldi nefndin að borginni hefði borið að auglýsa innkaupin á EES.
Kröfu um álit á skaðabótaskyldu hafnað
Reykjafell hélt því fram að krafan um að búnaðurinn gæti tengst miðlægri stýritölvu umferðarljósa hefði verið sniðin að búnaði frá Yunex Traffic. Nefndin taldi gögn málsins ekki styðja þá fullyrðingu og benti á að samkvæmt óumdeildum upplýsingum borgarinnar hefði búnaður frá Reykjafelli áður verið tengdur við stýritölvuna án vandkvæða.
Engin tilboð bárust í innkaupaferlinu og nefndin taldi því ekki að Reykjafell hefði orðið fyrir kostnaði við að undirbúa tilboð og taka þátt í ferlinu. Nefndin hafnaði kröfu félagsins um álit á skaðabótaskyldu borgarinnar.
Reykjafell krafðist þess einnig að samningar um kaup á miðlægum stýribúnaði og uppfærslu hans yrðu lýstir óvirkir. Nefndin hafnaði þeirri kröfu þar sem kærufrestur vegna samninganna var liðinn
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗