Jennifer Lawrence segir frá nýjum brjóstapúðum

Jennifer Lawrence með skart frá Swarovski.

Jennifer Lawrence með skart frá Swarovski. AFP

Bandaríska leikkonan Jennifer Lawrence greindi frá því í spjallþættinum Watch What Happens Live í gær að hún hefði nýlega fengið sér brjóstapúða. Með henni í þættinum var Josh Hutcherson, mótleikari hennar í nýjustu myndinni um Hungurleikana, Sunrise on the Reaping.

Talið barst að Hailey Glassman úr raunveruleikaþáttunum The Real Housewives of New York City. Glassman er sögð hafa nefbrotnað á brjósti annarrar konu í slagsmálum.

Þáttastjórnandinn Andy Cohen spurði Lawrence hvort henni þætti ráðgáta hvernig slíkt gæti gerst.

„Já, og ég er með brjóstapúða,“ svaraði Lawrence. Cohen hváði. „Já, þeir eru reyndar nýir,“ bætti hún við brosandi.

Cohen spurði þá hvort hún notaði B-skál. „Nei, ég fylli C-skál, held ég. Brjóstin eru jafnstór og áður,“ svaraði Lawrence. „Ég hef nú nefbrotið tvær manneskjur,“ bætti hún svo við í gamni.

People

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab