Lögreglan á Austurlandi furðar sig á rólegheitunum - „Allir of uppteknir?“
Ritstjórn DV
Sunnudaginn 22. nóvember 2026 21:19
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Það er rólegt að gera hjá lögreglunni á Austurlandi ef marka má Facebookfærslu þar sem má sjá mynd af lögreglumanni sem ypptir öxlum á auðri götu.
Veltir lögreglan því fyrir sér hvort rólegheitin tengist frétt sem var áberandi í vikunni sem leið. Það má ráða af spurningunni sem fylgir myndinni:
„Allir of uppteknir að keyra um í Vice City?“
Þarna er vísað til tölvuleiksins Grand Theft Auto VI sem kom út þann 19. nóvember. Þar fá leikmenn aftur að heimsækja borgina Vice City sem aðdáendur GTA-leikjanna fengu fyrst að kynnast árið 2002. Margir biðu með eftirvæntingu eftir leiknum enda eru 13 ár liðin síðan Grand Theft Auto V kom út. Fyrir þá sem átta sig ekki á hvað það er langur tími má benda á að barn sem byrjaði í grunnskóla þegar síðasti leikur kom út er nú líklega útskrifað úr framhaldsskóla.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗