Áheyrnarprufan sem misbauð Simon Cowell og þótti of djörf fyrir sjónvarpið- „Ég trúði varla eigin augum“
Simon Cowell, sem er hvað þekktur fyrir að vera harður og hvass dómari í hæfileikakeppnum í sjónvarpinu. Þrátt fyrir harða ímynd er þó hægt að ganga fram af honum, en það tókst einum keppanda í 14. þáttaröð Britain's Got Talent (BGT) árið 2020. Svo misboðið var dómaranum að hann stóð upp og strunsaði burt eftir að hafa ýtt á takkann til að hafna keppanda sem kallar sig Pricasso. Áheyrnarprufa keppandans þótti í raun svo djörf að hún var ekki sýnd í sjónvarpinu.
Pricasso heitir réttu nafni Tim Patch og undanfarin ár hefur hann getið sér gott orð sem óhefðbundinn málari. Hann þykir óhefðbundinn þar sem hann notar ekki pensil í listsköpun sinni. Þess í stað notar hann sinn eigin getnaðarlim. Þegar hann steig á svið í BGT ákvað hann að mála mynd af dómurunum Cowell og David Walliams.
Eftir að Cowell áttaði sig á því hvað hann ætti í vændum ýtti hann hratt á takkann sem gefur til kynna að dómari kæri sig ekki um að sjá keppanda aftur. Ekki nóg með það heldur rauk hann á fætur og strunsaði út.
Söngkonan Alesha Dixon, sem einnig var dómari í keppninni á þessum tíma, greinir frá uppákomunni í þættinum This Morning.
„Simon var bara: „Ég er kominn með nóg, ég er farinn“ og svo fór hann.“
Aleshu var ekki jafn misboðið. Hún fór ásamt Amöndu Holden, sem líka var dómari, og David upp á svið til að geta séð betur hvernig Pricasso skapar list.
„Ég trúði varla eigin augum. Ég þurfti að fara upp á svið bara til að vera viss um að þetta væri í alvörunni að eiga sér stað.“
Mun David Walliams þá hafa sagt: „Þátturinn hefur tekið myrka stefnu. Við höfum misst Simon. Hann er farinn heim.“
Alesha útskýrir að það þurfi mikið til að koma dómurum í svona keppni á óvart en Pricasso tókst það svo sannarlega.
Þannig að því miður geta lesendur ekki séð áheyrnarprufuna og viðbrögð hvassa dómarans. Þeir geta þó séð áheyrnarprufu Pricasso í systurþætti BGT í Ástralíu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗