Pútín vildi leyna tölunum – Tölvuþrjótar stálu þeim og birtu

Pressan

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 21:10

Þetta hlýtur að fara mjög illa í Pútín.

Vladímír Pútín hefur gert sitt besta til að leyna tölunum um mannfall rússneska innrásarhersins í Úkraínu. Allir vita að það er mikið, mjög mikið, svo það hefur verið honum mikið kappsmál að halda tölunum leyndum. En tölvuþrjótar brutust nýlega inn í tölvukerfi rússneskra stjórnvalda og komust yfir gögn um mannfallið og biðu ekki boðanna með að birt þau.

Gögnin ná yfir fjölda fallinna en einnig sýna þau hverjir það eru sem Pútín fórnar í stríðinu.

Það voru tölvuþrjótahóparnir Cyberpartisans BY og Silent Crow sem komust inn í tölvukerfi rússnesku hagstofunnar og náðu gögnunum. Cyberpartisans BY hópurinn er sagður hafa tengsl við stjórnarandstöðuna í Belarús og Silent Crow styður málstað Úkraínu.

Tölurnar sýna að tala fallinna rússneskra hermanna er á milli 393.000 og 450.000. Munurinn á tölunum er vegna mismunandi aðferða hópanna við að gera þær upp.

Gagnalekinn sýnir einnig hvaðan hinir föllnu eru. Þær upplýsingar staðfesta mynd sem hefur áður verið dregin upp. Það eru karlar frá ystu héruðum Rússlands, fátækum héruðum, sem eru notaðir sem fallbyssufóður á vígvellinum. Karlar frá Moskvu sleppa hins vegar að mestu.

Þegar dánartíðnin er reiknuð út þá er mannfall Moskvubúa tæplega 100 á hverja 100.000 íbúa.

Í Zabajkalskiy-héraðinu, sem er norðaustan við Mongólíu er hlutfallið hins vegar 1.200 karlar á hverja 100.000 íbúa.

The Guardian segir að rússneska hagstofan, Rosstat, hafi staðfest að brotist hafi verið inn í tölvukerfi hennar en þvertaki fyrir að viðkvæmum gögnum hafi verið stolið.

Gögnin sýna einnig hvar á vígvellinum menn deyja. Tæplega 55% af dauðsföllunum frá 2022 voru í Donetsk Oblast. Þar voru meðal annars hinar blóðugur orustur um Bakhmut og Pokrovsk. Fyrrnefndi bærinn varð þekktur undir heitinu „hakkavélin“ því Rússar sendu fótgönguliða fram í stríðum straumum án þess að þeir nytu nokkurra brynvarnar. Þeir náðu bænum en mannfallið var gríðarlegt.

Það verður að hafa þann fyrirvara á þessum tölum að gagnanna var aflað með þjófnaði og þær hafa ekki verið staðfestar af óháðum aðilum. En fjölmargir segja þær líklega réttar.

Bent hefur verið á að BBC og Mediazona hafa staðfest 287.831 dauðsfall rússneskra hermanna fram til 1. nóvember á þessu ári með því að notast við aðgengilegar heimildir.

Breska leyniþjónustan GCHQ áætlaði fyrr á þessu ári að Rússar gætu hafa misst allt að hálfa milljón hermanna.

The Economist hefur farið yfir nýju gögnin og telur að þau passi við þær upplýsingar og uppgjörsaðferðir sem miðillinn notar.

Það þarf einnig að hafa í huga að tölurnar í gagnagrunni rússnesku hagstofunnar eru greinilega ekki alveg uppfærðar. Þegar tillit er tekið til þess þá er tala fallinna rússneskra hermanna minnst 500.000.

Tölurnar ná aðeins yfir fallna, fjölda særðra og týndra verður að finna í öðrum gögnum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab