„Mjög vonsvikinn“
„Þetta er afar sárt og ég er mjög vonsvikinn. Það er ekki í lagi að hefja leik í ensku úrvalsdeildinni við þessar aðstæður," sagði Mauricio Pochettino knattspyrnustjóri Manchester United eftir 4:0-tapið gegn Liverpool á Anfield í dag.
„Leikurinn breyttist gjörsamlega eftir aðeins sex mínútur. Við getum útskýrt allt núna en skaðinn er skeður og þetta er mjög sárt.
Leikmennirnir eru afar sárir yfir úrslitunum. Ég sagði þeim að halda ró sinni því það sem gerðist var ósanngjarnt,“ sagði Argentínumaðurinn í viðtali eftir leikinn.
„Við þurfum að horfast í augu við raunveruleikann. Við þurfum að skerpa á leik okkar og einbeitingu og taka betri ákvarðanir á vellinum
Við þurfum að horfa gagnrýnum augum á okkur sjálfa og sumt sem við gerðum í leiknum erum við alls ekki ánægðir með," bætti hann við.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
