Naumur sigur ÍR í spennandi leik

Landsliðskonan Matthildur Lilja Jónsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir ÍR í kvöld. mbl.is/Anton Brink

ÍR vann eins marks útisigur 24:23 á Stjörnunni í úrvalsdeild kvenna í handbolta í Garðabæ í kvöld. 

ÍR er í 5. sæti með 11 stig en Stjarnan er á botni deildarinnar með 2 stig.

ÍR náði mest fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleik 7:3 en Stjörnukonur bitu frá sér og breyttu stöðunni í 7:6. ÍR var þó skrefi á undan og leiddi 11:9 eftir fyrri hálfleikinn.

Eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik komst ÍR fimm mörkum yfir 17:12 og síðan sex mörkum yfir 20:14 og Matthildur Lilja Jónsdóttir kom ÍR í 24:18 þegar rúmlega sjö mínútur voru til leiksloka. 

Stjörnukonur áttu hins vegar frábæran endasprett og tókst að skora síðustu fimm mörk leiksins en það dugði ekki til og ÍR landaði eins marks sigri.

Inga María Roysdóttir var markahæst á vellinum en hún skoraði átta fyrir Stjörnuna. mbl.is/Anton Brink

Inga María Roysdóttir var markahæst Stjörnunnar með átta mörk og Valgerður Elín Snorradóttir skoraði sjö. Margrét Einarsdóttir varði fjögur skot í markinu og Sara Schröder Winde tvö.

Hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með sex mörk, Sylvía Sigríður Jónsdóttir skoraði fimm og Anna María Aðalsteinsdóttir fjögur. Sif Hallgrímsdóttir varði níu skot og Elísa Helga Sigurðardóttir eitt.

Landsliðskonan Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði sex mörk fyrir ÍR.

Landsliðskonan Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði sex mörk fyrir ÍR. Anton Brink

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab