Höfnun Strætó á tilboði í hleðslulausn felld úr gildi

Strætó ber að veita félaginu stuttan frest til að leggja fram frekari gögn um skil opinberra gjalda og meta þau áður en ákvörðun er tekin um framhald útboðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kærunefnd útboðsmála hefur fellt úr gildi ákvörðun Strætó um að hafna tilboði YES-EU ehf. í hleðslulausn fyrir rafmagnsvagna. Strætó ber að veita félaginu stuttan frest til að leggja fram frekari gögn um skil opinberra gjalda og meta þau áður en ákvörðun er tekin um framhald útboðsins.

Strætó var jafnframt gert að greiða YES-EU 750 þúsund krónur í málskostnað í úrskurði nefndarinnar frá 16. nóvember.

Sex tilboð bárust í útboðið. Fimm þeirra voru metin ógild, þar á meðal tilboð YES-EU, og eitt var skráð óaðgengilegt. 

Yfirlitin sýndu stöðuna fyrir opnun tilboða

Samkvæmt útboðsgögnum átti staðfesting á því að bjóðandi væri í skilum með opinbera skatta og gjöld að fylgja tilboðinu. Hún átti að vera dagsett innan 90 daga fyrir opnun tilboða, sem fór fram 4. september 2025.

YES-EU kvaðst hafa gleymt að láta skuldleysisvottorð fylgja tilboði sínu. Félagið sendi Strætó síðar vottorð frá Skattinum sem var dagsett sex dögum eftir opnun tilboða. Strætó taldi vottorðið ófullnægjandi og gaf félaginu frest til að skila vottorði sem væri dagsett fyrir opnun tilboða.

Skatturinn gaf ekki út skuldleysisvottorð aftur í tímann. YES-EU lagði því fram hreyfingaryfirlit frá stofnuninni sem sýndu stöðu félagsins 31. ágúst 2025, fjórum dögum fyrir opnun tilboða. Strætó hafnaði tilboðinu 14. nóvember sama ár. Í rökstuðningi fyrir höfnuninni vísaði Strætó til þess að skuldleysisvottorðið væri dagsett eftir opnun tilboða.

Kærunefndin taldi að hreyfingaryfirlit frá Skattinum gætu talist fullnægjandi sönnun um skil opinberra gjalda. Þótt yfirlitin hefðu verið gefin út eftir opnun tilboða sýndu þau að félagið var í skilum fyrir opnun með þá skatta og gjöld sem þau náðu til.

Virðisaukaskattur kom fyrst til álita eftir kæru

Við meðferð kærunnar benti Strætó á að yfirlitin næðu meðal annars ekki til virðisaukaskatts. Nefndin tók fram að það hefði ekki verið ástæða höfnunarinnar. Hún benti jafnframt á að sönnunarbyrðin hvíldi á Strætó ef byggja ætti útilokun bjóðanda á vanskilum.

Að mati nefndarinnar mátti ætla að YES-EU hefði talið yfirlitin fullnægjandi. Strætó hefði því átt að gefa félaginu stuttan frest til að afla frekari yfirlita. YES-EU lagði fram sérstakt yfirlit um virðisaukaskatt við meðferð kærunnar. Samkvæmt úrskurðinum kemur það í hlut Strætó að leggja mat á stöðu félagsins að fengnum frekari gögnum og ákveða framhald útboðsins.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab