Teiknaði á kistu föður síns á útfarardaginn
Tinna Kristín, dóttir Sólveigar, hefur alltaf talað opinskátt um andlát föður síns. mbl.is/Margrét Þóra
Barnsfaðir Sólveigar Gærdbo Smáradóttur féll fyrir eigin hendi árið 2023 en þau voru í skilnaðarferli á þeim tíma.
Börnin hennar þrjú hafa tekist á við þessa erfiðu reynslu með mjög ólíkum hætti, enda mismunandi hvað hentar hverjum og einum þegar kemur að því að vinna úr sorginni. Þá telur Sólveig það skipta máli hvernig andlátið bar að, sem og aldur og þroski barnanna.
„Ég veit að mínir drengir voru mjög reiðir. Kannski ekki núna en þeir voru það. Enda skiljanlegt,“ segir hún, en þeir hafa ekki viljað taka þátt í starfi Arnarins, minningar- og styrktarsjóðs, líkt og systir þeirra. Úrvinnsla þeirra hefur verið með öðrum hætti.
Yngsta dóttirin, sem var átta ára þegar faðir hennar lést, hefur fundið mikilvægan stuðning í því að hitta önnur börn sem hafa misst náinn ástvin. Hún er mjög opin með sínar tilfinningar og hefur haft ríka þörf fyrir að ræða það sem gerðist.
Skólafélagarnir veigrað sér að leika við hana
Eitthvað sem dótturinni þótti sjálfsagt hentaði bræðrum hennar ekki. Á útfarardegi föður þeirra bauð Sólveig henni til að mynda að teikna á kistuna hans, sem hún vildi endilega gera og það hjálpaði henni með sorgarferlið „Strákarnir hefðu aldrei gert það, þeim hefði bara þótt það hallærislegt.“
Dóttir Sólveigar hefur alltaf talað opinskátt um andlát föður síns, meðal annars við skólafélaga sína, sem hefur orðið til þess að einhverjir hafa jafnvel veigrað sér við að leika við hana.
Sólveig segir börn ekki alltaf vita hvernig þau eigi að bregðast við þegar jafnaldrar þeirra hafa upplifað slíkan missi. Umræða um dauðann geti þótt óþægileg. „Það er pínu erfitt. Krakkar vita auðvitað ekki hvernig þeir eiga að taka á svona. Svo þegar hún kemur í Örninn þá er það öðruvísi. Þá getur hún talað um þetta,“ segir Sólveig.
Viðtalið við Sólveigu birtist í fimmtudagsblaði Morgunblaðsins og má nálgast í heild sinni hér fyrir neðan:
Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.
Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗