Kári Stefánsson og Eva fagna tveggja ára brúðkaupsafmæli

Kári Stefánsson og Eva Bryngeirsdóttir.

Kári Stefánsson og Eva Bryngeirsdóttir. Ljósmynd/Instagram

Kári Stefánsson læknir og fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Eva Bryngeirsdóttir einkaþjálfari fagna tveggja ára brúðkaupsafmæli í dag.

Parið gekk í hjónaband 22. nóvember 2024 við hátíðlega athöfn. 38 ára aldursmunur er á parinu en hann er fæddur 1949 og hún 1987. 

„Mig grunaði ekki heldur að hann hefði mætt allt of snemma í þennan heim! Eða hvort ég mætti of seint. Ég læri kannski einhvern tímann betur á tímann,“ segir Eva í færslu sinni á Instagram þegar hún deildi ljósmyndum af stóra deginum á félagsmiðlum fyrir um tveimur árum. 

Eva Bryngeirsdóttir var guðdómleg þegar hún giftst Kára sínum.

Eva Bryngeirsdóttir var guðdómleg þegar hún giftst Kára sínum. Ljósmynd/Instagra

Það kom flestum á óvart þegar það birtist í blöðunum að Kári hefði gengið í hnapphelduna með 38 árum yngri konu. Stuttu eftir brúðkaupið mætti Kári í viðtal til Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Sunnudagsmogganum. Þegar hún spurði hann um hjónabandið vildi hann ekki mikið um það segja. 

„Í fyrsta lagi kemur þér þetta ekki við, þetta er einkamál og ég ræði ekki persónuleg mál, allra síst við blaðakonu af íhaldsblaði,“ sagði Kári í viðtalinu við Kolbrúnu og snéri upp á sig. 

Smartland óskar Kára og Evu hjartanlega til hamingju með brúðkaupsafmælið! 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab