Þessi mistök hafa 30% fólks gert í kynlífinu

Rannsóknir hafa sýnt að í kynlífinu hefur fólk gert ein ákveðin alvarleg mistök í 30% tilfella. Þetta eru mistök við notkun smokksins og þau geta auðvitað orðið alvarleg, leitt til þungunar eða gert kynsjúkdómum kleift að breiðast út.

Fræðilega séð vitum við flest hvernig á að setja smokk á getnaðarliminn en þrátt fyrir að fólki hafi kannski gengið vel að æfa sig á að setja smokk á banana í skólakynfræðslunni, þá er það greinilega ekki ávísun á að þetta gangi vel í hita leiksins.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar, sem Kinsey Institute gerði, þá játa allt að 30% fólks á heimsvísu að hafa snúið smokknum öfugt þegar hann var settur á liminn, það er að segja rangan var út.

„Margir eru eflaust hissa á hversu margir Bretar gera enn mistök, sem er hægt að koma í veg fyrir, sem geta dregið mjög úr virkni smokksins,“ hefur Metro eftir Augustina Vasilachi, lyfjafræðingi hjá Pharmacy2U.

Ef illa gengur að rúlla smokknum niður á liminn og honum er snúið við og settur þannig á, þá þýðir það að hliðin, sem snýr nú út, hefur snert liminn og þar með getur komið til þungunar eða kynsjúkdómar smitast á milli að sögn Augustina.

Hún sagði mikilvægt að henda smokknum ef það mistekst að setja hann á og setja nýjan á áður en kynlífinu er haldið áfram.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab