Á bjargað úr sjálfheldu í Hamarsá
Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kom í dag á og tveimur lömbum hennar til bjargar úr sjálfheldu við Einstigsfoss í Hamarsá í Hamarsdal suður af Berufirði.
Slysavarnafélagið Landsbjörg greinir frá þessu í tilkynningu.
Rjúpnaveiðimenn höfðu gengið fram á ána í gær, laugardag, og látið vita af dvöl hennar ásamt lömbum sínum inn á dalnum.
Segir í tilkynningunni að þegar hugað hafi verið að ánni í morgun hafi hún ekki verið reiðubúin til að halda til byggða. Hún lenti þá í Hamarsá og barst ásamt lömbum sínum einhverja leið þangað til hún komst í skjól í skúta.
Vistin í skútanum ekki góð
Vist ærinnar og lamba hennar í skútanum var hins vegar ekki góð og komst hún hvergi.
„Björgunarsveitarfólk hélt inn á dal og komst niður að ánni rétt ofan við skútann og gat sett þar á flot kajak. Mannskap var þannig fleytt yfir ánna í skútann, að ánni og lömbum hennar. Þrátt fyrir volkið var ekkert fararsnið á henni, en lömb hennar voru samvinnufúsari og þáðu far með kajaknum á þurrt,“ segir í tilkynningunni.
Ærin var hins vegar á þeim buxunum að halda kyrru fyrir í skútanum en að lokum tókst björgunarmönnum að koma á hana böndum og draga yfir ána.
Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kom í dag á og tveimur lömbum hennar til bjargar úr sjálfheldu við Einstigsfoss í Hamarsá í Hamarsdal suður af Berufirði. Ljósmynd/Landsbjörg
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


