Vendingar í máli Madeleine litlu - Lýsti því fyrir samfanga sínum hvernig hann myrti „litla ljóshærða“ stúlku

Pressan

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 20:15

Madeleine McCann. Mynd:Getty

Rannsóknarlögreglumenn eru með vitnaskýrslu í höndunum um að þýski kynferðisbrotamaðurinn Christian Bruckner hafi játað það fyrir samfanga sínum að hafa rænt og myrt „litla ljóshærða stúlku“. Frá þessu greinir Mail on Sunday.

Bruckner hefur lengi verið grunaður um morðið á Madeleine McCann, breskri stúlku sem var aðeins þriggja ára gömul þegar hún hvarf úr sumarleyfisíbúð sem hún deildi með fjölskyldu sinni í Portúgal árið 2007. Þjóðverjinn hefur neitað sök í málinu en síðasta haust lauk hann afplánun á fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir að nauðga 72 ára gamalli konu árið 2005. Breska lögreglan telur að Bruckner hafi rænt stúlkunni og myrt hana og hefur leitast eftir því að fá Bruckner framseldan svo hægt sé að ákæra hann í málinu. Slíkt brýtur þó gegn stjórnarskrá Þýskalands þar sem Bretland er ekki lengur í Evrópusambandinu.

Samkvæmt The Mail on Sunday var það þýska alríkislögreglan BKA sem aflaði vitnaskýrslunnar árið 2024. Vitnið, Laurentiu Codin, segir að Bruckner hafi treyst honum fyrir þessu leyndarmáli þegar þeir voru báðir í afplánun í fangelsi nærri Hanover árið 2019, en það var ekki fyrr en ári seinna sem lögregla greindi frá því að Bruckner væri sakborningur í máli Madeleine.

Codin, sem er 52 ára gamall og sat inni fyrir innbrot, segir að Bruckner hafi lýst því fyrir honum að hafa brotist inn í sumarleyfisíbúð í leit að peningum og skartgripum. Þar fann hann sofandi stúlku. Hann nam stúlkuna á brott á húsbíl sínum og ók í um það bil 45 mínútur áður en hann stöðvaði og braut kynferðislega á henni. Hann hafi orðið hræddur þegar hann taldi sig sjá blá blikkandi ljós og þá ákveðið að bana stúlkunni.

Innbrotsþjófurinn ræddi við Mail on Sunday og sagði:

„Hann sagði mér að hann bæri kynferðislegar langanir til ungra barna og að hann hefði oft náð litlum stúlkum með húsbíl sínum ... og gert kynferðislega ljóta hluti með stúlkunum. Einn daginn spurði hann mig hvort það væri möguleiki að lögreglan gæti fundið erfðaefni hans á glugga því hann stökk út um einn slíkan með lítið barn í fanginu.“

Codin hélt fyrst að Bruckner væri að ljúga en skipti svo um skoðun þegar hann heyrði af máli Madeleine. Codin deildi því bæði með BKA-lögreglunni og Mail on Sunday hvernig Bruckner lýsti því að hafa banað stúlkunni. Miðillinn hefur ákveðið að deila þeirri lýsingu ekki.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab