KA vann Akureyrarslaginn

Hafþór Vignisson úr Þór reynir að stöðva KA-manninn Dag Gautason.

Hafþór Vignisson úr Þór reynir að stöðva KA-manninn Dag Gautason. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

KA vann Þór á útivelli í Akureyrarslagnum 35:30 í úrvalsdeild karla í handbolta í kvöld. 

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en heimamenn í Þór voru marki yfir í leikhléi 17:16. 

KA var sterkari aðilinn í síðari hálfleik og komst fljótlega yfir í upphafi hans. Gestirnir náðu fjögurra marka forskoti, 25:21, um miðbik hálfleiksins en Þórsarar gáfust ekki upp og skoruðu næstu þrjú mörk og minnkuðu muninn í eitt mark, 25:24.

KA var hins vegar sterkara á lokakaflanum og sigldi að lokum fimm marka sigri heim.

Úr leiknum í kvöld.

Úr leiknum í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Dagur Árni Heimisson var frábær í liði KA. Hann skoraði tólf mörk úr sextán skotum og Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði sjö og Dagur Gautason fimm.

Markverðir KA vörðu einnig vel. Bruno Bernat varði 10 skot og Ágúst Elí Björgvinsson sjö.

Hjá Þór skoruðu þrír leikmenn Hafþór Már Vignisson, William Skovager og Jóhann Geir Sævarsson fimm mörk.

Nikola Radovanovic varði sex skot í marki Þórs og Tristan Ylur Guðjónsson eitt.

Stuðningsmenn KA fögnuðu vel í leikslok.

Stuðningsmenn KA fögnuðu vel í leikslok. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab