Frábær leikur Tryggva Garðars dugði ekki til
Tryggvi Garðar Jónsson var besti leikmaður Viking þegar liðið tapaði 36:33 fyrir Fjellhammer í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Tryggvi var markahæsti leikmaður Viking, en hann skoraði níu mörk og gaf fjórar stoðsendingar.
Viking er í 10. sæti deildarinnar með átta stig eftir tíu leiki.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/32/1693262.jpg)