Á bjargað úr sjálfheldu í Hamarsá

Björgunarmenn notuðust við kajak.

Björgunarmenn notuðust við kajak. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kom í dag á og tveimur lömbum hennar til bjargar úr sjálfheldu við Einstigsfoss í Hamarsá í Hamarsdal suður af Berufirði. 

Slysavarnafélagið Landsbjörg greinir frá þessu í tilkynningu. 

Rjúpnaveiðimenn höfðu gengið fram á ána í gær, laugardag, og látið vita af dvöl hennar ásamt lömbum sínum inn á dalnum.

Segir í tilkynningunni að þegar hugað hafi verið að ánni í morgun hafi hún ekki verið reiðubúin til að halda til byggða. Hún lenti þá í Hamarsá og barst ásamt lömbum sínum einhverja leið þangað til hún komst í skjól í skúta. 

Vistin í skútanum ekki góð

Vist ærinnar og lamba hennar í skútanum var hins vegar ekki góð og komst hún hvergi. 

„Björgunarsveitarfólk hélt inn á dal og komst niður að ánni rétt ofan við skútann og gat sett þar á flot kajak. Mannskap var þannig fleytt yfir ánna í skútann, að ánni og lömbum hennar. Þrátt fyrir volkið var ekkert fararsnið á henni, en lömb hennar voru samvinnufúsari og þáðu far með kajaknum á þurrt,“ segir í tilkynningunni. 

Ærin var hins vegar á þeim buxunum að halda kyrru fyrir í skútanum en að lokum tókst björgunarmönnum að koma á hana böndum og draga yfir ána.

Hamarsá.

Hamarsá. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kom í dag á og tveimur lömbum hennar til bjargar úr sjálfheldu við Einstigsfoss í Hamarsá í Hamarsdal suður af Berufirði. Ljósmynd/Landsbjörg

Rjúpnaveiðimenn höfðu gengið fram á ána í gær, laugardag, og látið vita af dvöl hennar ásamt lömbum sínum inn á dalnum. Ljósmynd/Landsbjörg

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab