Hundrað og eitthvað ljóð
Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Bragi Ólafsson sendi frá sér tvær bækur á síðustu vikum. Fyrir stuttu kom út bókin Innanríkið – Aðfangadagar, og skömmu fyrir það ljóðsafnið Á horni Bayswater Road og Lækjargötu.
Aðspurður um hvernig hann hafi hagað valinu í ljóðsafnið segist Bragi hafa ákveðið að stokka upp ljóðabækur sínar og ekki hafa ljóðin í þeirri röð sem þau birtust upprunalega. „Mér fannst það dýnamískara að láta ljóðin tala saman. Ekki til að sjá hvernig ég hef þróast, enda finnst mér ég ekki hafa þróast mikið sem ljóðskáld þegar ég lít yfir þetta sem er kannski slæmt en ég er alveg sáttur við það. Ljóðin tala á annan hátt saman með því að raða þeim ekki í réttri röð.
Ég til dæmis hafði skýra hugmynd um hvert ætti að vera fyrsta ljóðið og síðasta ljóðið og svo koma kaflar þar sem myndast kannski jafnvel einhver þemu jafnvel. Svo bætti ég við 16 ljóðum sem að komu svona á frekar stuttu tímabili vegna þess að þegar ég byrja að yrkja þá tekur það yfir í einhvern tíma og ég geri ekkert annað á meðan.
Safnið hefði getað orðið stærra, en var mjög harður við mig að skera niður. Það var margt í mörgum ljóðum sem ég hefði viljað hafa með en kannski ljóðin í heild lifðu kannski ekki. Ég reyndi því að svona að þrengja þetta eins og ég gat og varð hugsað til ljóðasafna annarra skálda sem hafa kallast hundrað kvæði eða hundrað ljóð. En ég hugsaði: sko, ókei, ég ætla að hafa þetta 101. Svo tókst mér ekki að þrengja það niður í það þannig að þau urðu aðeins fleiri og ég veit ekki hvað eru mörg ljóð í þessari bók. Hún er bara hundrað og eitthvað ljóð, ég hef ekki talið þau. Ég vona að mér verði ekki bent á hversu mörg ljóðin eru af því ég ætla ekki að telja þau sjálfur.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗