Hnetusmjörskaka sem þarf ekki að baka

Hnetusmjörskaka Sigrúnar Þorsteinsdóttur með súkkulaðihjúp og söltuðum jarðhnetum.

Hnetusmjörskaka Sigrúnar Þorsteinsdóttur með súkkulaðihjúp og söltuðum jarðhnetum. Ljósmynd/Aðsend

Hnetusmjör, dökkt súkkulaði og saltaðar jarðhnetur gefa tóninn í þessari óbökuðu köku Sigrúnar Þorsteinsdóttur. Botninn er úr möndlum, döðlum og súkkulaði en ofan á kemur mjúk hnetusmjörsfylling og súkkulaðihjúpur.

Sigrún er klínískur barnasálfræðingur með meistaragráðu í heilsusálfræði og heldur úti uppskriftavefnum Cafesigrún. Hugmyndin að kökunni á sér nokkuð langan aðdraganda. Hún mundi eftir uppskrift sem hún hafði séð á netinu nokkrum árum áður en hafði hvorki vistað hana né lagt innihaldið á minnið. Þá tók við tilraunastarfsemi í eldhúsinu.

Í huganum var líka hnetusmjörskaka sem hún hafði smakkað á kaffihúsinu InSpiral í Camden í London. Eftir að hafa fikrað sig áfram með bragð og áferð varð þessi útgáfa til.

Til verksins þarf kröftugan blandara eða matvinnsluvél og 18 cm smelluform. Kakan er kæld þar til hún stífnar og borin fram ísköld, en ekki frosin.

Hnetusmjörskaka

Möndlur, döðlur og dökkt súkkulaði mynda botninn undir mjúkri hnetusmjörsfyllingunni. Kakan er borin fram ísköld. Ljósmynd/Aðsend

Ein kaka fyrir um 12 manns.

Botn

  • 120 g möndlur
  • 80 g mjúkar döðlur
  • 50 g dökkt súkkulaði með hrásykri

Fylling

  • 400 ml möndlumjólk eða önnur mjólk að eigin vali
  • 75 ml hreint hlynsíróp
  • 55 g saltaðar jarðhnetur
  • 170 g hreint hnetusmjör
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 20 dropar hrein stevía
  • 45 g óbragðbætt próteinduft úr ertum
  • 95 g kakósmjör

Skraut

  • 50 g dökkt súkkulaði með hrásykri
  • 1 lófafylli saltaðar jarðhnetur

Aðferð

  1. Steinhreinsið döðlurnar og setjið í matvinnsluvél ásamt möndlunum. Vinnið þar til blandan er fínmöluð. Bætið súkkulaðinu við í bitum og vinnið áfram þar til það er fínsaxað og allt hefur blandast vel.
  2. Klæðið botninn á 18 cm smelluformi með bökunarpappír. Þrýstið blöndunni jafnt niður í botninn og geymið í kæli á meðan fyllingin er útbúin.
  3. Setjið öll hráefnin í fyllinguna, nema kakósmjörið, í kröftugan blandara eða matvinnsluvél. Vinnið vel þar til fyllingin er alveg slétt og laus við gróf korn.
  4. Bræðið kakósmjörið við vægan hita. Hellið því í mjórri bunu út í fyllinguna á meðan vélin gengur.
  5. Hellið fyllingunni yfir botninn. Sláið forminu varlega nokkrum sinnum niður á borðið til að losa loftbólur. Setjið í frysti í um eina klukkustund eða þar til kakan er mjög stíf viðkomu.
  6. Takið kökuna úr frystinum og látið standa við stofuhita í um 15 mínútur, eða geymið í kæli þar til hún er borin fram.
  7. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði við vægan hita. Hrærið öðru hverju og takið af hitanum þegar það er nánast bráðnað. Gætið þess að vatn komist ekki í súkkulaðið.
  8. Hellið súkkulaðinu yfir kökuna. Saxið jarðhneturnar og dreifið yfir.
  9. Berið kökuna fram ískalda en ekki frosna.

Fyrir veganútgáfu skal velja jurtamjólk og mjólkurlaust súkkulaði. Ef kakan á að vera glútenlaus þarf einnig að ganga úr skugga um að hráefnin séu án glútens.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab