45 ára og birti mynd af sér nakinni í baði

Christina Aguilera á viðburði í október. Söngkonan vakti athygli á dögunum þegar hún birti mynd af sér nakinni í baði. AFP/Amy Sussman

Söngkonan Christina Aguilera vakti athygli þegar hún birti mynd af sér nakinni í baðkari á Instagram á dögunum.

Draugatjákn voru það eina sem huldu brjóst hennar á myndinni.

Aðdáendur söngkonunnar létu hrifningu sína í ljós í athugasemdum. Einn sagðist þurfa að tína kjálkann upp af gólfinu en annar grínaðist með að hafa fallið á hnén við að sjá myndina.

Skjáskot/Instagram

Aguilera, sem er 45 ára, hefur áður rætt um að læra að sætta sig við sjálfa sig og láta gagnrýni annarra ekki stjórna lífi sínu. Í færslu á Instagram í janúar í fyrra hvatti hún fylgjendur sína til að sýna sjálfum sér þolinmæði og virðingu.

„Enginn annar getur ákveðið hver þú ert. Þú skuldar engum skýringar,“ skrifaði hún og bætti við að fólk myndi alltaf hafa skoðanir á því sem aðrir gerðu eða létu ógert.

E news

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅