Notaði hreinsiefni í stað sykurs í kokteila

Þrír gestir á veitingastað Chili’s í Norður-Karólínu hlutu efnabruna eftir að hreinsiefni var tekið fyrir sykur við margarítugerð. Myndin er til skýringar. Juan Eduardo Montalvo/Unsplash

Þrír gestir á veitingastað Chili’s í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum hlutu efnabruna í og við munn eftir að hreinsiefni var fyrir mistök notað í stað sykurs við gerð margarítukokteila. Tveir starfsmenn fundu fyrir svipuðum einkennum eftir að hafa smakkað efnið.

Atvikið varð í bænum Forest City miðvikudaginn 28. október. Starfsleyfi veitingastaðarins var tímabundið fellt úr gildi en endurveitt daginn eftir að lokinni rannsókn og úrbótum. The Independent greinir frá.

Taldi hreinsiefnið vera sykur

Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á svæðinu fékk starfsmaður veitingastaðarins fituhreinsiefni í kornformi frá verktaka sem vann við að háþrýstiþvo húsið að utan 26. október. Efnið var sett í ómerkt ílát sem var borið inn og skilið eftir við barinn.

Tveimur dögum síðar tók annar starfsmaður efnið fyrir sykur og notaði það við undirbúning kokteilagerðar fyrir hádegisþjónustuna.

Skömmu eftir opnun pöntuðu þrír gestir margarítur. Þeir fundu strax fyrir óþægindum og efnabruna í og við munninn eftir að hafa drukkið kokteilana, að sögn heilbrigðisyfirvalda. Gestirnir létu starfsfólk vita og leituðu læknisaðstoðar.

Tveir starfsmenn smökkuðu síðan efnið og greindu frá svipuðum einkennum.

Segja brugðist hafa verið tafarlaust við

Heilbrigðisyfirvöld hófu rannsókn og fyrirskipuðu ítarleg þrif á viðkomandi svæðum, búnaði og yfirborðsflötum. Starfsleyfið var endurveitt 29. október.

Talsmaður Chili’s sagði í yfirlýsingu til The Independent að starfsfólk hefði brugðist tafarlaust við til að aðstoða þá sem slösuðust og koma í veg fyrir frekari meiðsli. Atvikið einskorðaðist við þennan eina veitingastað. Málsatvik hefðu verið rannsökuð ítarlega og tekið á vandamálunum sem komu í ljós.

Jason Masters, yfirmaður heilbrigðisyfirvalda á svæðinu, sagði atvikið undirstrika mikilvægi réttra merkinga, geymslu og meðhöndlunar hreinsiefna á veitingastöðum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅