Agndofa yfir ESB-áformum Burnham

Theresa May lét af embætti forsætisráðherra árið 2019.

Theresa May lét af embætti forsætisráðherra árið 2019. AFP

Theresa May, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, segist agndofa yfir því að Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, telji vert að skoða mögulega inngöngu Bretlands í Evrópusambandið að nýju. 

Burnham undirritaði fyrir helgi samkomulag við Evrópusambandið um að liðka fyrir viðskiptum og hreyfanleika ungs fólks. Burnham hefur sagt inngöngu í Evrópusambandið að nýju koma til greina. 

May tók við sem forsætisráðherra í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar árið 2016, þar sem Bretar kusu að ganga út úr sambandinu. May hafði stutt áframhaldandi ESB-aðild en sagðist virða niðurstöðuna á sínum tíma og vann að útgöngunni í embættistíð sinni.

Hún neyddist til að segja af sér í maí 2019 eftir að henni mistókst að fá Brexit-samning sinn samþykktan á þinginu.

Vanvirðing við kjósendur

May telur ljóst að samningaviðræður við ESB gætu tekið gríðarlegan tíma frá ríkisstjórninni og torveldað getu til að taka á öðrum málum.

„Og það er ein af ástæðunum fyrir því að ég horfi nokkuð agndofa á það sem Andy Burnham er að tala um, frekari skref í átt að inngöngu í ESB,“ sagði hún í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC í dag. 

Hún telur það vanvirðingu við þá sem kusu árið 2016 að ætla nú að ganga í sambandið að nýju. 

Óróleiki hefur verið í breskum stjórnmálum frá útgöngunni en allir þessir aðilar hafa komið og farið í forsætisráðherraembættinu síðan þá. Samsett mynd/AFP

„Burnham vill klappa kjósendum á kollinn og segja: „Vitið þið hvað? Munið þið eftir atkvæðagreiðslunni? Þið höfðuð nú rangt fyrir ykkur, var það ekki? Reynið því aftur og komist að réttu niðurstöðunni,“ sagði hún.

Segir hún að Burnham verði að sætta sig við að Brexit hafi átt sér stað og halda áfram að vinna að öðrum málum. 

Í kjölfar samninga Burnhams við ESB stendur til að leggja fram frumvarp á þinginu í þessari viku sem gerir Bretlandi kleift að samræma sig tilteknum reglum ESB, meðal annars um matvælastaðla.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab