Rúnar Alex og Viktor Bjarki fengu skell
Nordsjælland vann 5:0 stórsigur á FC Köbenhavn í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Heimamenn komust yfir á 37. mínútu og voru einu marki yfir í hálfleik. Eftir stundarfjórðung í síðari háfleik fékk Akos Markgraf varnarmaður FC Köbenhavn rautt spjald og róðurinn því þungur fyrir gestina.
Nordsjælland skoraði svo þrjú mörk á sjö mínútna kafla skömmu síðar og gerði út um leikinn með einu marki til viðbótar í lokin.
Rúnar Alex Rúnarsson kom inn á eftir átján mínútna leik eftir að Diant Ramaj markvörður liðsins fór meiddur af velli. Viktor Bjarki Daðason lék síðustu tuttugu mínúturnar í liði FC Köbenhavn en Gunnari Orri Olsen var ekki í leikmannahópnum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗