Guðfaðir gervigreindar segir hana geta útrýmt mannkyninu á næstu þremur árum
Breski prófessorinn og nóbelsverðlaunahafinn Geoffrey Hinton, er stundum sagður vera faðir gervigreindar vegna vinnu hans við að þróa mikilvæga hluta hennar. Hann er svartsýnn á framtíðina með gervigreind og segir hana geta útrýmt mannkyninu á næstu þremur árum.
Þetta sagði hann nýlega á ráðstefnu um gervigreind í Dublin á Írlandi. Áður hafði Paul Christiano, sem er einnig sérfræðingur í gervigreind, sagt að það sé „mikil hætta“ á að gervigreind taki stjórnina á heiminum yfir innan þriggja ára. Hann lét þau ummæli falla á ráðstefnu um öryggismál tengd gervigreind í Toronto í Kanada.
Hinton er óformlegur ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar um mál tengd gervigreind og sóttu fulltrúar ríkisstjórnarinnar ráðstefnuna í Dublin.
Í ræðu sinni ræddi hann einnig hvernig viðhorf hans sjálfs til gervigreindar hafa breyst.
„Ef hún er ofur-greind, þá munt þú ekki stjórna henni, hún mun stjórna þér,“ sagði hann um gervigreindina.
Hann sagði að nú sé unnið að þróun kerfa sem verði fljótlega miklu greindari en við og að við höfum sáralitla hugmynd um hvernig við getum tryggt að við höfum stjórn á þeim.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗