Alexandra segir frá góðverkinu sem hún gleymdi aldrei þótt 10 ár séu liðin - „Hvernig í fjandanum ætlarðu að borga?“
Fyrir 10 árum átti Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri og hafnarstjóri í Suðurnesjabæ, ekki krónu með gati en vildi samt gleðja vinkonu sem var að ganga í gegnum erfiða tíma. Nýkomin úr námi og ekki með mikla þekkingu á heimi listaverka ákvað Alexandra að hafa samband við listamanninn Tolla til að sjá hvort það væri ekki hægt að fá eftirprent af einu verki sem vinkonan var alveg hugfangin af.
Öðruvísi fór en áætlað var og einsetti Alexandra sér eftir samskipti við listamanninn að dag einn, þegar hún yrði fullorðin, myndi fyrsta listaverkið sem hún keypti sér vera frá Tolla. Nú tíu árum seinna hefur hún efnt loforðið sem hún gaf sjálfri sér og deilir hugljúfu sögunni á bak við viðskiptin.
„Í nóvember 2016 sendi ég Tolla tölvupóst. Ég átti vinkonu sem hafði árum saman verið mikill aðdáandi Tolla og var alveg sérstaklega hugfangin af einni tiltekinni mynd eftir hann. Hún hafði margoft talað um þessa mynd og ég vissi hvað hún var henni kær. Á þessum tíma var vinkona mín að ganga í gegnum erfiðleika og mig langaði ekkert meira en að geta glatt hana. Ég fékk því þá frábæru hugmynd að senda Tolla línu og athuga hvort ég gæti keypt prent af þessari tilteknu mynd, sem þá var í einkaeigu.
Ég átti ekki krónu með gati, nýskriðin úr námi, en ég hafði bitið þetta í mig. Ég hafði ekki hundsvit á því hvernig listaverkakaup gengju fyrir sig, hvað þá að maður gæti ekki bara pantað eitthvað random print eftir hentugleika. En póstinn sendi ég.“
Tolli svaraði Alexöndru og bauð henni að koma í heimsókn vikuna eftir á vinnustofu hans í Reykjavík. Hann tók þar vel á móti Alexöndru og sýndi henni tvö málverk sem voru með sama mótívi og myndin sem vinkonuna dreymdi um. Svo bað hann Alexöndru að velja á milli þeirra og þá var Alexandra komin í vandræði því eins og áður segir átti hún ekki krónu með gati.
„Á meðan ég skoðaði myndirnar hugsaði ég með mér: Jæja, Alex. Alltaf kemurðu þér í einhver vandræði. Hvernig í fjandanum ætlarðu að borga fyrir þetta?
En myndina varð ég auðvitað að kaupa. Það var ekki aftur snúið úr þessu.
Ég sagði Tolla hvor myndin varð fyrir valinu. Hann rétti mér hana og ég spurði hvernig við myndum haga greiðslunni.
Hann svaraði einfaldlega að það yrði engin greiðsla. Þessi mynd væri gefin frá hjarta til hjarta. Og þar við sat.“
Alexandra rifjar upp að hún hafi þarna verið ein á vinnustofunni með Tolla. Þarna voru engin vitni og ekkert annað á bak við þessa rausnarlegu gjöf annað en góðmennska. Ákvað Alexandra þann dag að þegar hún hefði tök á því þá myndi hún kaupa sitt fyrsta listaverk af Tolla.
„Í dag, nánast áratug síðar upp á dag, varð það að veruleika. Myndin sem hann gaf mér fyrir tíu árum fór á góðan stað og gerði nákvæmlega það sem henni var ætlað að gera. Hún gladdi vinkonu mína.
Í dag kvaddi ég svo Tolla á vinnustofunni hans, í þetta sinn sem stoltur eigandi að mínu eigin verki eftir hann, með sömu hlýjuna í hjartanu og þegar ég kvaddi hann fyrir tíu árum.
Það eru sumir hlutir sem maður gleymir einfaldlega aldrei. Og stundum tekur það tíu ár að ná markmiðum, hversu stór eða smá sem þau kunna að virðast.
Takk fyrir kæri Tolli.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗