Óttar og Kristófer lögðu upp mörk á Ítalíu

Óttar Magnús Karlsson.

Óttar Magnús Karlsson. Ljósmynd/@oaklandrootssc

Óttar Magnús Karlsson lagði upp eina mark Renate í 2:1-tapi liðsins gegn toppliði Brescia í ítölsku C-deildinni í fótbolta í dag. 

Óttar kom inn á í upphafi síðari hálfleiks og lagði upp jöfnunarmark liðsins á 82. mínútu. Heimamenn svöruðu hins vegar með sigurmarki sínu sjö mínútum síðar.

Renate er í vondum málum í 18. og næstneðsta sæti deildarinnar með 12 stig. 

Kristófer Jónsson lagði upp eina mark Reggiana í 1:1 jafntefli gegn Forli. Gestirnir í Reggiana komust yfir á 17. mínútu en heimamenn jöfnuðu tveimur mínútum fyrir leikslok. 

Reggiana er í sjötta sæti í C-deildinni, fjórum stigum frá þriðja sætinu, með 22 stig.

Kristófer Jónsson.

Kristófer Jónsson. Ljósmynd/Triestina

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab