Tvö sett sýslumenn í stað Birnu

Innlent | mbl | 22.11.2026 | 19:00

Birna Ágústsdóttir.

Birna Ágústsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Birna Ágústsdóttir, sýslumaður á Norðurlandi vestra og settur sýslumaður á Vesturlandi, mun láta af embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra og sem settur sýslumaður á Vesturlandi þann 1. desember.

Frá þeim tíma mun hún koma að undirbúningi nýs sameinaðs embættis sem mun taka til starfa 1. janúar en þá tekur hún við starfi staðgengils sýslumanns, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. 

Samhliða þessari breytingu verður Björn Hrafnkelsson settur sýslumaður á Norðurlandi vestra og Ásta Valdimarsdóttir hjá sýslumannsembættinu á Vesturlandi frá 1. desember til 31. desember 2026.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab