„Eins og er er ég með 25 plöntur heima“
Sesselja Líf Valgeirsdóttir er mikil plöntukona og rekur áhugann til ömmu sinnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á sumum heimilum er að finna ótal plöntur sem dafna vel, enda hlúð að þeim af alúð, en á öðrum stendur ein, yfirgefin og við það að visna. Við erum jú með misjafnlega græna fingur. Heimili Sesselju Lífar Valgeirsdóttur tilheyrir fyrri hópnum, en þar eru 25 plöntur sem lifa sínu besta lífi. Sesselja er algjör plöntukona og segir áhugann eiga rætur að rekja til ömmu sinnar.
Áður en við fræðumst meira um plöntuáhugann skulum við kynnast Sesselju aðeins betur.
„Ég er 32 ára og bý með kærastanum mínum, Björgvini Óskari Guðmundssyni, syni okkar, Birni Fannari, sem fæddist fyrr á þessu ári, og tíu ára hundinum okkar, henni Kolku, sem er border collie-blendingur. Ég er miðjubarnið af fimm systkinum og vil taka fram að miðjubarnssyndrómið er raunverulegt fyrirbæri! Ég hef oft þótt frábrugðin systkinum mínum, bæði hvað varðar áhugamál og persónueinkenni.“
Sesselja útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2023. Hún hefur starfað á skurðdeild kviðarhols og þvagfæra á Hringbraut undanfarin sex ár en er í fæðingarorlofi sem stendur. Hún á líka langan fótboltaferil að baki með Aftureldingu, Þrótti og ÍBV í efstu og næstefstu deild og varð bikarmeistari með ÍBV árið 2017.
„Skórnir eru í skápnum eins og er, en ekki alveg komnir upp á hillu. Það er alltaf smá kitl í tánum. Svo hef ég mikinn áhuga á plöntum og hef gaman af að kynna mér allt sem viðkemur umhirðu þeirra.“
Birtan ræður mestu um staðsetningu plantnanna. Sesselja prófar sig áfram og færir þær ef þær virðast ekki ánægðar. mbl.is/Árni Sæberg
„Það var kannski fyrsta eiginlega plantan mín“
Aðspurð um plöntuáhugann og hvort hún muni hver fyrsta plantan hennar var segir Sesselja:
„Í minningunni hef ég alltaf verið innan um plöntur. Amma mín og nafna, sem ég var mikið hjá sem barn, átti gott safn og mamma tók nokkrar í varanlegt fóstur þegar amma og afi heitinn stóðu í flutningum.“
Áhuginn tók þó ekki að aukast fyrir alvöru fyrr en árið 2015, þegar Sesselja flutti aftur á æskuslóðir til föður síns í Vestmannaeyjum, þá 21 árs. Hann hafði tekið við plöntum móður hennar þegar hún flutti í bæinn nokkrum árum áður.
„Pabbi mundi ekki hvenær þeim hafði síðast verið umpottað og þær voru orðnar renglulegar og nokkuð villtar í útliti. Hann hugsaði samt dásamlega um þær, skolaði þær reglulega, strauk þeim og talaði við þær, sem allra reyndustu plöntusérfræðingar segja algjört lykilatriði. Hann reykti á þessum tíma og átti til að „aska“ svolítið í pottana. Þegar hann hætti urðu þó nokkrar ansi leiðar og einhverjar drápust. Það mætti hreinlega segja að þær hafi drepist úr nikótínfráhvörfum, blessaðar.“
Sesselja ákvað að umpotta plöntunum, sem voru flestar júkkur og kaktusar, og fór að leita ráða á netinu. Nokkrir bentu henni á hópinn „Stofublóm inniblóm pottablóm“ á Facebook, sem hún gekk í og mælir með. „Þar er ýmis fróðleikur um umhirðu plantna og það kemur á óvart hvað margir glíma við sömu vandamál og maður sjálfur. Þar eru líka alls konar ráð, sum svolítið skrítin en vel þess virði að prófa.“
Á þessum tíma vann hún á hjúkrunarheimili þar sem einnig var mikið af plöntum. Samstarfskona hennar sinnti þeim vel og gaf henni góð ráð um umhirðu og hvernig ætti að koma upp afleggjurum. „Þá varð ekki aftur snúið. Lengi vel kom ég heim með afleggjara úr vinnunni og hugsa að ég hafi ekki keypt mér plöntu fyrr en löngu síðar. Þetta sama ár áskotnaðist mér þó yfir 25 ára gamalt mánagull frá ömmu vinkonu minnar, sem mér þótti verulega vænt um. Það var kannski fyrsta eiginlega plantan mín.“
Á heimili Sesselju eru nú 25 plöntur, en þegar mest var voru þær hátt í 50. Hún hefur verið dugleg að gefa vinum og vandamönnum plöntur. mbl.is/Árni Sæberg
„Þegar mest var voru þær hátt í 50“
Það er óhætt að segja að enginn skortur sé á „grænum félagsskap“ á heimili Sesselju. „Eins og er er ég með 25 plöntur heima en einhverjum á eftir að umpotta og þá gæti bæst aðeins í hópinn. Þegar mest var voru þær hátt í 50, en ég hef verið dugleg að gefa vinum og vandamönnum plöntur til að prýða heimilin eða reyna að kveikja hjá þeim áhuga.“
Sesselju finnst plöntur setja mikinn svip á heimilið og helst vildi hún hafa þær í öllum herbergjum.
„Mér finnst plöntur gera heimilið að heimili, ef þú skilur hvað ég meina. Ef ég þyrfti ekki að taka tillit til þess hvaða aðstæður þær þurfa til að lifa væri ég með þær alls staðar. Mér finnst til dæmis mjög erfitt að geta ekki haft plöntu á gluggalausa baðherberginu mínu. Ég hef oft hugsað um að kaupa gerviplöntu þangað, en fæ mig ekki til þess. Mér finnst það eitthvað hallærislegt og hálfgerð svik við hinar plönturnar.“
Hún segir plöntur lífga upp á rýmið og þær þurfi ekki að blómstra í öllum regnbogans litum til þess, þótt slíkar plöntur séu líka fallegar og skemmtilegar. „Með tímanum fer manni að þykja vænt um þær. Þá leggur maður sig fram við að hugsa vel um þær og finna þeim réttu aðstæðurnar svo þeim líði sem best. Það er svo gaman þegar þær blómstra og þeim líður sjáanlega vel. Þá fær maður gott í hjartað.“
Sesselja segir plöntur gera heimilið hlýlegra og líflegra og vildi helst hafa þær í öllum herbergjum. mbl.is/Árni Sæberg
„En þá þyrfti ég líklega stærri íbúð!“
Hvernig velurðu plöntur og staðsetningu þeirra? Hugsarðu meira um birtuna og þarfir plantnanna eða hvernig þær passa inn í rýmið?
„Í seinni tíð hef ég þurft að passa að velja plöntur eftir staðsetningu, ekki bara af því að þær eru fallegar eða hafa lengi verið á óskalistanum. Þegar ég fæ mér nýja plöntu les ég mér til um birtuskilyrði og aðrar þarfir hennar. Áður hafði ég meiri tíma til að snúast í kringum plönturnar og fannst gaman að prófa mig áfram, jafnvel með tegundir sem mér hafði ekki tekist að halda lengi á lífi, eins og kínverskt peningablóm eða plöntur sem gera miklar kröfur um vökvun. Nú hef ég hins vegar komist að því að mér leiðast svoleiðis plöntur. Mér finnst gott að geta veitt þeim það sem þær þurfa án þess að fara í hálfgert kulnunarástand eða fá brjálað samviskubit yfir því að þær séu alltaf hálfleiðar eða, það sem verra er, alltaf korteri frá því að syngja sitt síðasta.“
Hvernig velurðu potta og raðar plöntunum saman svo þær njóti sín og falli að stílnum á heimilinu?
„Ég hef gaman af pottum í fallegum litum og með skemmtilegum mynstrum. Safnið í geymslunni veldur mér reglulega valkvíða því mig langar að hafa þá alla uppi við og kaupa plöntur í þá. En þá þyrfti ég líklega stærri íbúð! Drenpottar eru líka orðnir svo fallegir að ég nota þá stundum með undirskálum í sama lit og sleppi utanyfirpottunum. Birtan ræður mestu um staðsetninguna og ég færi plönturnar ef þær virðast ekki ánægðar. Mér finnst nauðsynlegt að hafa plöntur í stofugluggunum. Stofan er stór og björt og við verjum þar miklum tíma, svo þær gera hana hlýlega. Bjarta eldhúsgluggann nota ég fyrir græðlinga, afleggjara og plöntur sem þurfa meiri eftirtekt eða tíðari vökvun. Svo á ég nokkrar stórar plöntur sem mér þykir mjög vænt um. Þær gera íbúðina heimilislega og fara vel við viðarlitt borðstofuborðið og skenkinn. Það tók tíma að finna réttu staðina, pottana og standana svo þær nytu sín og uppröðunin væri falleg. Þær vilja óbeina birtu og standa því við stóru gluggana, þar sem þunnar gardínur draga úr beinu sólarljósi.“
„Blöðin algjört listaverk“
Aðspurð um uppáhaldsplöntuna segir Sesselja erfitt að velja, en nefnir þó nokkrar sem eiga sérstakan stað í hjarta hennar.
„Uppáhaldsplantan mín er variegated-monsteran sem ég fékk gefins sem afleggjara í gegnum hóp á Facebook fyrir tveimur eða þremur árum. Hún hafði lengi verið á óskalistanum og getur verið erfið í umönnun, en er bilaðslega falleg. Mín er ekki stór, en ég verð alltaf spennt og stolt þegar hún kemur með nýtt blað.
Ég verð líka að nefna köllubróðurinn, Dieffenbachiu, sem ég fékk afleggjara af á hjúkrunarheimilinu þar sem ég vann. Hann er svo tignarlegur og blöðin algjört listaverk. Svo held ég mikið upp á þykkblöðunginn sem amma gaf mér afleggjara af fyrir nokkrum árum. Það er peningablóm, þó ekki kínverskt, og sagan segir að eiganda þess skorti aldrei peninga.“
Er einhver planta á óskalistanum og af hverju?
„Efst á óskalistanum er sagópálmi. Ég veit ekki alveg hvað heillar mig við hann, kannski minnir hann mig á ferðir til heitari landa. Útlandaþráin er aldrei langt undan hjá Íslendingi. Ég keypti einu sinni slíkan í Garðheimum, en áttaði mig ekki á hversu kröfuharður hann væri. Eftir mikla þrjósku af minni hálfu endaði hann því miður í tunnunni.
Mig langar líka í fallega orkídeu og silfurmána, sem er klifurplanta eins og mánagull. Blöðin hafa skemmtilega satínáferð og yfirbragð þeirra breytist eftir því hvernig birtan fellur á þau.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


